„Ræsingin skóp keppnina, ég reyndi að leggja allt í sölurnar og var mjög ánægður með bílinn,“ sagði Rosberg.
„Ég gerði mistök í ræsingunni og þá tapaði ég stöðunni á brautinni. Nico ók afar vel í dag,“ sagði Hamilton.
„Það var gaman að standa hér og þetta kom mér aðeins á óvart, ég veit ekki hvað gerðist hjá Sebastian en allt í einu var hann fyrir aftan mig. Baráttan var erfið en skemmtileg,“ sagði Felipe Massa á verðlaunapallinum.
„Dekkið hjá Nico var farið að slitna og þá fer það að hristast aðeins og í hreinskilni sagt þá hafði hann mun meiri áhyggjur af því en við. Eftir föstudagsæfingarnar bjuggum við okkur undir harða keppni við Ferrari, en sem betur fer varð ekkert úr henni,“ sagði Paddy Lowe tæknistjóri Mercedes.
Ferrari virtist ekki geta keppt við Mercedes í dag, Sebastian Vettel var búinn að missa Mercedes ökumennina langt frá sér þegar mistökin urðu í þjónustuhléinu.

„Ég sá tækifærið til að komast fram úr um leið og vesenið byrjaði hjá Sebastian í þjónustuhléinu,“ sagði Rob Smedley frammistöðustjóri Williams.
„Keppnin hefði þurft að vera töluvert mikið lengri til að gefa mér tækifæri á að komast fram úr Felipe. Mercedes virðist geta notað tímatöku stillingarnar á vélinni oftar í keppninni,“ sagði Vettel sem endaði fjórði.
„Keppnin var góð en því miður var baráttan ekki framar. Þetta er góð niðurstaða fyrir okkur sem lið en auðvitað vill maður alltaf meira,“ sagði Valtteri Bottas sem endaði fimmti á Williams bílnum.
„Ég er mjög ánægður með sjötta sæti. Við vissum að það væri mjög erfitt að halda Williams fyrir aftan. Uppfærslurnar sem koma fyrir næstu keppni eru mjög spennandi. Við vonum bara að þær virki,“ sagði Nico Hulkenberg sem endaði sjötti og lauk góðri viku. Hann vann Le mans sólarhringskappaksturinn og náði góðum stigum í dag.