Pepsi-deildarlið Fylkis varð í kvöld fyrsta liðið til að komast í undanúrslit Borgunarbikars kvenna eftir 4-0 sigur á 1. deildarliði Grindavíkur á Fylkisvellinum.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir er heldur betur í markastuði þessa dagana en hún skoraði þrjú mörk í kvöld og var líka með þrennu þegar Fylkir vann Aftureldingu í síðasta leik liðsins í Pepsi-deildinni.
Berglind Björg skoraði öll mörkin sína á fyrstu 35 mínútum leiksins en Hulda Hrund Arnarsdóttir innsiglaði síðan sigurinn á 56. mínútu.
Þetta er þriðja árið í röð sem Fylkisstelpurnar komast í undanúrslitin í bikarnum en þær komust þangað líka 2009 og 2011. Kvennalið Fylkis hefur hinsvegar aldrei komist alla leið í bikarúrslitaleikinn.
Aðrir leikir í átta liða úrslitum Borgunarbikars kvenna eru ÍBV-Selfoss (á morgun), Stjarnan-Þór/KA (á morgun) og Valur - KR (11. júlí).
Berglind Björg með þrennu í öðrum leiknum í röð | Fylkir áfram í bikarnum
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


Sex leikmenn Íslands í lyfjapróf
Fótbolti




Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin
Íslenski boltinn



„Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“
Fótbolti
