Grillaðar pylsur með beikonkartöflusalati og súrsuðu grænmeti Rikka skrifar 24. júlí 2015 13:30 Gómsætar grillaðar pylsur. vísir
Hefurðu prófað að búa til þínar eigin pylsur? Eyþór Rúnarsson, sjónvarpskokkur á Stöð 2 kennir okkur réttu handtökin við að búa til þessar líka ljómandi góðu grillpylsur.Grillaðar pylsur með beikonkartöflusalati og pikluðu grænmeti Grillpylsur3 kg svínahakk 30-40 % feitt (gott er að nota svínabóg)54 gr salt3 msk svartur pipar6 msk reykt paprikuduft6 msk paprikuduft15 hvítlauksrif200 ml vatn 21 gr fennelfræGörn Setjið piparinn, paprikuduftið, saltið og hvítlaukinn saman í matvinnslu-vél með vatninu og blandið saman í 1 mín. Setið svínahakkið í stóra skál og hellið kryddblöndunni út í ásamt fennelfræjunum og blandið vel saman með höndunum þar til hakkið fer að festast vel saman. Setjið hakkið í pylsugerðarvélina og þræðið görnina framan á hana og mótið pylsurnar. Setjið pylsurnar í bakka með viskustykki í botninn og látið standa í ísskáp í 1 sólarhring. Setjið pylsurnar á miðlungsheitt grillið og grillið í ca. 8 mín á hvorri hlið og færið þær svo í efri hilluna og eldið í 4 mín í viðbót þar. Berið fram með sinnepi, pylsubrauði og pikkluðu grænmetiBeikonkartöflusalat1 dós 18% sýrður rjómi150 gr majónes2 msk grófkorna sinnep1 bréf beikon (eldað stökkt)2 msk gróft skorið dill800 gr soðið kartöflusmælkiSjávarsaltSvartur pipar úr kvörnSetjið sýrða rjómann, majónesið og grófkorna sinnepið saman í skál og blandið saman og smakkið til með salti og pipar. Skerið beikonið fínt niður og bætið út í skálina ásamt dillinu. Skerið kartöflusmælkið í helming og bætið út í skálina. Blandið öllu saman og smakkið aftur til með salti og pipar eftir smekk.
Eyþór Rúnarsson Grillréttir Kartöflusalat Svínakjöt Uppskriftir Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Lífið Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Lífið Fleiri fréttir Ríflega níutíu manns mættu í eitt stærsta pálínuboð Íslandssögunnar Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Sjá meira