Átjan ára strákur úr GKG, Aron Snær Júlíusson, gerði sér lítið fyrir og varð hlutskarpastur í Einvíginu á Nesinu sem var haldið í 19. sinn í dag.
Aron Snær komst í úrslit gegn atvinnumanninum Birgi Leif Hafþórssyni sem einnig er í GKG. Aron yfirsló upphafshögg sitt á 9. holu aðeins en var inn á braut.
Birgir Leifur tók áhættu en aðeins of mikla því hann var einum metra frá því að komast inn á braut við flötina. Birgir Leifur varð því að taka þriðja höggið sitt af teig.
Högg Birgis var líklega með þeim fallegri sem hafa sést á 9. holunni á Nesinu. Kúlan stöðvaðist um einum og hálfum metra frá holu og Birgir setti púttið síðan niður. Örn á seinni boltanum en fjögur högg í heildina.
Aron Snær þurfti einnig fjögur högg á holuna og því varð að grípa til bráðabana. Eitt högg af um 100 metra færi og högg Arons var nær. Hann vann því þetta mót frekar óvænt en þetta var í fyrsta skipti sem hann tekur þátt.
Stefán Már Stefánsson varð þriðji og Hlynur Geir Hjartarson fjórði. Stefán Már vann höggleikinn sem fór fram fyrr í morgun.
Þetta er góðgerðarmót hjá Nesklúbbnum og DHL. Að þessu sinni var það BUGL, barna- og unglingageðdeild Landspítalans, sem fékk eina milljón króna frá DHL.
Aron hafði betur gegn Birgi Leifi í bráðabana
