Audi mun að öllum líkindum kynna nýjan jeppa á bílasýningunni í Frankfürt í næsta mánuði sem eingöngu gengur fyrir rafmagni og kemst yfir 500 kílómetra á hverri hleðslu rafmagns og verður að auki um 500 hestöfl.
Rafhlöður bílsins koma frá S-kóresku framleiðendunum LG Chem og Samsung SDI. Jeppinn verður byggður á sama MLB 2 undirvagni og er undir nýrri kynslóð Audi Q7 jeppans.
Rafhlöður jeppans eru 90 kWh og því öflugri en í Tesla Model S P85D, en Tesla mun þó brátt bjóða Tesla Model S með jafn öflugri rafhlöðu, en sá bíll mun komast í 100 km hraða á 2,8 sekúndum. Audi hefur ekki upplýst hversu fljótur jeppinn mun verða. Þessi nýi rafmagnsjeppi Audi á að koma á markað árið 2018.
Audi rafmagnsbíll með 500 km drægni og 500 hestöfl
