Alexía Björg Jóhannesdóttir, kynningarfulltrúi Borgarleikhússins, segir að ákveðið hafi verið að bæta við fjórða Billy leikaranum þar sem strákarnir stækka fljótt og það gæti þurft að hafa einn tilbúinn sem gæti tekið við keflinu í vetur. Ekki er vitað hvenær fyrsta sýning Bjarna verður sem Billy en það mun gerast bráðlega.
Bjarni er aðeins 12 ára gamall en hann fór í áheyrnarprufur fyrir hlutverk Billy á sínum tímum en þá var hann fingurbrotinn og í gipsi upp á handlegginn. Það var svo ekki fyrr en í nóvember sem hann fékk símhringingu þar sem honum var boðið aukahlutverk sem besti vinur Billy, sem hann þáði með glöðu geði. „Sá sem lék Michael var að stækka og ég var fenginn til þess að létta á álaginu. Eftir að ég kom fram í minni fyrstu sýningu þá var hringt í foreldra mína þar sem framleiðendurnir sögðust vilja fá mig til þess að æfa fyrir hlutverk Billy. Ég var í algjöru sjokki og varð svakalega glaður.“

Bjarni segir það ekki vera flókið að æfa eitt hlutverk en leika annað hlutverk á sviði. „Ég lít bara á þetta sem dyr. Ég opna Billy-dyrnar og loka Michael-dyrunum þegar ég er á æfingum og svo öfugt þegar ég sýni. Það er góð stemning í hópnum og við erum svo mikið saman að við erum orðnir vel tengdir.“
Söngleikurinn er fyrsta hlutverk Bjarna í atvinnuleikhúsi en hann lék aukahlutverk í kvikmyndinni Sumarbörn og hefur verið á námskeiðum Leikfélagi Mosfellsbæjar. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á leiklistarheiminum og ég ætla að halda áfram að mæta í prufur eftir að Billy Elliott-sýningarnar klárast. Ég hef verið að æfa fimleika sem hefur hjálpað mér mjög mikið í hlutverkinu en ég stefni á að komast í landsliðið í fimleikum einhvern daginn.“
Þrátt fyrir að Bjarni hafi áður reynt fyrir sér í leiklistinni þá er hann nýr í dansinum. „Ég æfði hiphop-dans í einhvern tíma en hef aldrei áður dansað steppdans. Hann er samt ekki það erfiður þegar maður er kominn með grunninn.“
Allir fjórir Billy-leikararnir munu koma fram á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu á laugardaginn á opnu húsi sem er velkomið öllum.