Veiði

Bestu haustflugurnar í laxinn

Karl Lúðvíksson skrifar
Black Ghost
Black Ghost
Þegar líður á haustið breytist valið á flugum sem er kastað fyrir lax. Það eru margir sem vilja meina að lax sjá liti vel, og við erum ekki að rengja það, aðrir sem vilja meina að stærð og framsetning flugunnar fyrir laxinn sé það sem skipti mestu máli.

Hvernig getur þá staðið á sögum veiðimanna sem hafa staðið við hylji og lamið með þekktum flugum og ekkert gengið, en þegar einhver ljót fluga ólík öllu sem hefur verið kastað á laxinn þann daginn fer út í þá verður allt vitlaust og laxinn tekur eins og enginn sé morgundagurinn? Heppni og tilviljun?

Við ræddum málin við nokkra veiðimenn og sáum að það var ákveðinn samnefnari í fluguvali þessarar manna á haustinn. Fyrir utan flugur sem virðast virka allt tímabilið eins og rauður frances, svartur frances, þýsk snælda, Undertaker o.fl. þá tókum við 3 flugur sem voru nefndar hjá þeim öllum þegar kom að vali á haustflugu. Fyrsta skal nefna White Wing. Þessari flugu kynntist ég sjálfur vel í Grímsá í haustveiðinni og fékk ég hana afhenta með því loforði að segja ekki frá því. Síðan eru liðin 15 ár og ég vill meina að fyrningarfrestur þessa leyndarmáls sé nú úti. Flugan er einföld í hnýtingu og hefur gefið mörgum góða veiði þegar skyggja tekur. Kannski er það hvíti vængurinn, hver veit? Þessa áttu að hafa í boxinu þínu fyrir næsta túr.

Síðan er það Black Ghost. Þessi hefur verið notuð í gegnum áin með frábærum árangri í Ytri Rangá á haustinn og svo veiðin hefur hún stundum verið að þeir sem voru með hana undir veiddu 70% af dagsveiðinni á 4 stangir af 20 í ánni og oft á stöðum sem voru ekki að gefa mikið. Hún er veiðin á haustin, það er bara svo einfalt. Best þykir hún þyngd með conehead og er gjarnan veidd með sökkenda. En það fer þó eftir ánni, vatnshraða og dýpi. En hún virkar!

Síðast en ekki síst má nefna Thunder & Lighting. Þessi rómaða fluga var uppáhald flestra þeirra sem gáfu okkur ráð þegar kom að vali á haustflugu og þykir hún sérstaklega skæð í t.d. Norðurá, Þverá, Langá og Haffjarðará. Hún er hnýtt, eins og margar flugur bæði í hár og fjaðraútgáfu og það hefur ekki skipt máli hvor er notuð. það sem skiptir mestu máli að sögn veiðimanna er að litasamsetningin þarf að vera rétt.






×