Veiði

Landaði 6 löxum úr 6 ám á sama deginum

Karl Lúðvíksson skrifar
Snævarr Örn Georgsson landaði 6 löxum úr 6 ám á sama deginum
Snævarr Örn Georgsson landaði 6 löxum úr 6 ám á sama deginum
Metin koma af ýmsum stærðum og gerðum í veiðinni en nýlega var þó sett met sem verður líklega seint slegið.

Veiðisvæðið sem er kennt við Jöklu og er í umsjón leigutakans Strengja er samsett af nokkrum veiðiám sem eru Jökla, Laxá, Fossá, Fögruhlíðará, Kaldá og Sauðá. Þegar þetta svæði er veitt róterast stangirnar á milli þessara svæða sem er skemmtileg upplifun því veiðin er afskaplega ólík í þeim öllum og svæðin miskrefjandi og veiðast á mjög ólíkann hátt.

Snævarr Örn Georgsson var við veiðar þarna nýlega og gerði það sem alla dreymir um að gera þarna. Það er að taka einn lax á hverju svæði. Hann gerði þó gott betur en það því hann náði þessu á einum og sama deginum sem verður að teljast einstakur árangur. Svæðið hefur í heildina samkvæmt nýjum tölum frá Landssambandi Veiðifélaga gefið 580 laxa og á góðann tíma eftir þar sem ekki er útlit fyrir að Jökla fari á yfirfall. Nú þegar er þetta met á vatnasvæðinu og miðað við hversu seint laxinn fór að ganga eins og víða á landinu er september mánuður sem á eftir öllu að vera mjög góður þar eystra og þeir sem þekkja svæðið fullyrða að það eigi alveg 200-300 laxa inni sé það vel stundað það sem eftir lifir af veiðitímanum.






×