Fanndís: Vantaði bara bikarinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. september 2015 22:01 Fanndís fagnar markinu sem tryggði Breiðabliki Íslandsmeistaratitilinn. vísir/auðunn níelsson
Fanndís Friðriksdóttir var hetja Breiðabliks þegar liðið tryggði sér sinn 16. Íslandsmeistaratitil með 1-2 sigri á Þór/KA fyrir norðan í dag. „Það er brjáluð stemmning hérna,“ sagði Fanndís glöð þegar blaðamaður Vísi heyrði í henni hljóðið fyrir skemmstu. Blikar eru á heimleið frá Akureyri og það var greinilega mikið stuð í rútunni. „Þetta er gríðarlega sætt, það vantaði bara bikarinn,“ bætti Fanndís við en Blikar fá Íslandsbikarinn afhentan á Kópavogsvelli á laugardaginn eftir leikinn við ÍBV í lokaumferðinni. Blikakonur spiluðu ekki vel í fyrri hálfleik gegn Þór/KA í dag og voru 1-0 undir að honum loknum. Fanndís sagði að Blikar hefðu verið staðráðnir í að snúa dæminu sér í vil og klára titilinn fyrir norðan. „Fyrri hálfleikurinn var mjög lélegur en við spjölluðum saman í hálfleik og vorum ákveðnar í að klára þetta. „Svo var þetta aldrei spurning í seinni hálfleiknum,“ sagði Fanndís sem skoraði sigurmark Blika á 62. mínútu með skoti úr vítateignum eftir fyrirgjöf Svövu Rósar Guðmundsdóttur. Þetta var 19. mark Fanndísar í sumar í en hún er langmarkahæst í Pepsi-deild kvenna og á Gullskóinn vísan. Tíu ár eru liðin síðan Blikar urðu síðast Íslandsmeistarar en Fanndís er sú eina sem er eftir úr meistaraliðinu frá 2005. „Þetta er búin að vera löng bið og loksins kom þetta,“ sagði Fanndís að lokum.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira