Skoðun

Ríkisvaldið mismunar starfsmönnum sínum

Árni Stefán Jónsson og Kristín Á. Guðmundsdóttir og Snorri Magnússon skrifa
Samninganefndir SFR stéttarfélags, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands lögreglumanna urðu fyrir gríðarlegum vonbrigðum með útspil samninganefndar ríkisins við framlögðum drögum félaganna að launalið kjarasamninga félaganna á síðasta fundi sínum hjá sáttasemjara. Kröfur félaganna byggja að öllu leyti á þeim samningum sem ríkið hefur þegar gert við aðra ríkisstarfsmenn og á niðurstöðum gerðardóms. Því bjuggust samninganefndir félaganna við umræðu um þau drög á fundi samninganefndanna, enda var gert samkomulag á milli samningsaðila í sumar um að bíða eftir niðurstöðum gerðardóms.

Nú, þegar ítarlega rökstudd niðurstaða dómsins liggur fyrir, er í raun ótrúlegt að ríkisvaldið neiti að horfast í augu við þá niðurstöðu og kjósi frekar að efla til ófriðar við þrjú stærstu félög ríkisstarfsmanna innan vébanda BSRB og mismuna þannig starfsmönnum sínum gróflega.

Í tilboði ríkisins, sem lagt var fyrir samninganefndir félaganna í síðastliðinni viku, er ljóst að ríkisvaldið ætlar þeim hópum ríkisstarfsmanna sem lægst launin hafa að fá mun minni launahækkanir en þegar hefur verið samið um við aðra. Það er algjörlega klárt að þessir starfsmenn munu aldrei sætta sig við slíka mismunun og ef við sem erum í forsvari fyrir þá gerum slíkan samning yrði hann felldur með öllum greiddum atkvæðum.

Fram kemur í gerðardómnum að niðurstaða hans varðandi hjúkrunarfræðinga og BHM sé í takti við kjarasamninga sem þegar hafa verið gerðir á almennum vinnumarkaði. Krafa opinberra starfsmanna undanfarin misseri hefur verið sú að ná fram jafnrétti í launum á við launafólk á almennum markað. Allar launakannanir, bæði þær sem eru gerðar á vegum stéttarfélaganna sjálfra og tölur frá Hagstofu Íslands, sýna að opinberir starfsmenn bera skarðan hlut frá borði. Laun þeirra eru á bilinu 16-17% lægri en þeirra sem starfa á almennum vinnumarkaði. Þetta er óásættanlegt og þarf að leiðrétta. Samninganefndir félaganna skora á ríkisstjórnina að endurskoða tilboð sitt svo samningar náist án íþyngjandi aðgerða með öllum þeim skaða sem af þeim hlýst.

Samninganefndir SFR stéttarfélags í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélags Íslands (SLFÍ) og Landssambands lögreglumanna (LL) standa sameiginlega í kjaraviðræðum við samninganefnd ríkisins, en félögin þrjú eru stærstu félögin innan BSRB sem semja við ríkið og hópurinn sem samið verður fyrir telur rúmlega 5.200 manns.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×