Hulkenberg verður áfram hjá Force India Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 3. september 2015 10:30 Nico Hulkenberg Vísir/Getty
Nico Hulkenberg hefur samið við Force India til 2017, eftir að hafa ekki fengið Ferrari sæti. Liðið er ánægt með stöðugleikann. Hulkenberg hafði verið orðaður við sæti hjá nokkrum liðum, þar á meðal Ferrari sæti Kimi Raikkonen, sem hann missti af. Haas liðið hafði einnig verið nefnt til sögunnar. Force India lýsti lendingunni sem „mikilvægum stöðugleika á næstu árum.“ Hulkenberg sagðist „mjög ánægður með að geta klárað málið“ segir gott að hafa framtíðina skýra. „Ég þekki liðið inn og út og mér líður eins og heima hjá mér hérna svo það var rökrétt að vera um kyrrt,“ sagði Hulkenberg. „Framfarir liðsins undanfarin tvö ár hafa sýnt að það ætlar sér stóra hluti í framtíðinni. Ég held að það sé allt til staðar til þess og ég vil halda áfram að vaxa með liðinu á meðan við færumst saman nær toppnum,“ bætti Hulkenberg við. Líklega hefur Hulkenberg samið um að fá að taka þátt í Le Mans sólarhringskappakstrinum aftur á næsta ári. Hann var í sigurliði keppninnar í ár og hlaut mikið lof fyrir akstur sinn. Slíkar óskir gætu hafa komið í veg fyrir að hann semdi við annað lið. „Ég fer ekkert leynt með að vera einn stærsti aðdáandi Nico svo það er frábært að staðfesta að hann verði hjá okkur næstu tímabil. Hann hefur verið fjögur ár með liðinu nú þegar og á þeim tíma höfum við éð hann verða einn besta ökumann heims,“ sagði Vijay Mallya, liðsstjóri Force India. „Nico hefur hraðann, tæknilegu þekkinguna og þroskann til að hjálpa okkur að ná frábærum úrslitumá næstu árum. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda áfram að þróa bíl sem hentar hans styrkleikum,“ sagði Mallya að lokum.
Formúla Tengdar fréttir Ricciardo útilokar ekki að fara til Ferrari Hver ekur fyrir Ferrari á næsta ári? Sú spurning brennur á allra vörum. Nú hefur Daniel Ricciardo viðurkennt áhuga á sæti Kimi Raikkonen. 30. júní 2015 23:00 Arai: Honda vélin er öflugari en Reanult vélin Yasuhisa Arai, yfirmaður kappakstursmála hjá Honda segir að Formúlu 1 vél japanska framleiðandans sé aflmeiri en Reanult vélin. Hann segir muninn 25 hestöfl. 1. september 2015 21:30 Raikkonen áfram hjá Ferrari 2016 Kimi Raikkonen verður áfram ökumaður Ferrari liðsins á næsta tímabili. Ýmsar getgátur hafa verið á loft um framtíð hans og möguleika annarra ökumanna til að ná í sæti hjá liðinu. 19. ágúst 2015 21:30 Mest lesið Hákon um markið: Hann sá mig ekki en heyrði í mér Fótbolti Hvetja stuðningsfólk Man. Utd til að mæta í svörtu því félagið sé „að deyja“ Enski boltinn Hákon tryggði Lille jafntefli á Westfalenstadion Fótbolti Declan Rice eftir sjö marka kvöld: Höfum verið að spila svona allt tímabilið Fótbolti Benoný Breki áfram á skotskónum Enski boltinn Brahim Diaz tryggði Real Madrid sigur á nágrönnunum Fótbolti Arsenal menn í miklu markastuði í Hollandi Fótbolti „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Enski boltinn Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Íslenski boltinn Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Fleiri fréttir Lofaði Hamilton að ræða ekki við Verstappen Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Sjá meira
Ricciardo útilokar ekki að fara til Ferrari Hver ekur fyrir Ferrari á næsta ári? Sú spurning brennur á allra vörum. Nú hefur Daniel Ricciardo viðurkennt áhuga á sæti Kimi Raikkonen. 30. júní 2015 23:00
Arai: Honda vélin er öflugari en Reanult vélin Yasuhisa Arai, yfirmaður kappakstursmála hjá Honda segir að Formúlu 1 vél japanska framleiðandans sé aflmeiri en Reanult vélin. Hann segir muninn 25 hestöfl. 1. september 2015 21:30
Raikkonen áfram hjá Ferrari 2016 Kimi Raikkonen verður áfram ökumaður Ferrari liðsins á næsta tímabili. Ýmsar getgátur hafa verið á loft um framtíð hans og möguleika annarra ökumanna til að ná í sæti hjá liðinu. 19. ágúst 2015 21:30