Yasuhisa Arai, yfirmaður kappakstursmála hjá Honda segir að Formúlu 1 vél japanska framleiðandans sé aflmeiri en Reanult vélin. Hann segir muninn 25 hestöfl.
Jenson Button annar ökumanna McLaren liðsins, eina liðsins sem notar Honda vélar lýsti síðustu keppni sem „vandræðalegri“.
Þrátt fyrir það telur Arai að Honda vélin sé nú betri en Renault vélin hvað afl varðar. Hann telur þó að hún sé enn eftirbátur Ferrari og Mercedes vélanna.
Aðspurður um muninn milli framleiðanda sagði Arai að hann teldi Honda vera 40-50 hestöflum á eftir Mercedes en um 25 á undan Renault.
„Vélin okkar er aðeins á eftir Ferrari vélinni en miklu betri en Renault vélin. Mercedes er enn langt á undan,“ sagði Arai.
„Ég hef mikla trú að að við náum langt á seinni hluta tímabilsins, við munum reyna að ná topp liðunum tveimur. Það gæti þó reynst erfitt því þau hafa bæði áreiðanleika og afl,“ bætti Arai við.
„Við viljum vera nálægt topp liðunum þegar tímabilið klárast,“ sagði Arai að lokum.
Arai: Honda vélin er öflugari en Reanult vélin

Tengdar fréttir

Vettel: McLaren getur náð sér á strik á næsta ári
Ferrari ökumaðurinn Sebastian Vettel er viss um að slakt gegni McLaren liðsins taki enda. Fjórfaldi heimsmeistarin telur líklegt að McLaren verði í titilbaráttu á næsta tímabili.

Whiting: Honda misnotaði reglurnar
Regluvörður Alþjóða akstursíþróttasambandsins, FIA, Charlie Whiting segir McLaren-Honda hafa misnotað reglurnar um refsingar fyrir ofnotkun vélaíhluta í Belgíu.

McLaren notar tvær vélar í hvorn bíl á Spa
McLaren mætti með splunkunýjar Honda vélar til Belgíu. Liðið ætlar að beita sérstakri aðferð um helgina. Tvær nýjar vélar fara í hvorn bíl um helgina.