Ómótstæðilegir amerískir réttir 25. september 2015 12:00 Matur
Eva Laufey er mjög hrifin af amerískri matargerð og var sú matargerð innblástur í síðasta þætti af Matargleði Evu. Stökkir kjúklingabitar með kartöflubátum, hunangssósu og fersku grænmeti. Mac n Cheese í öllu sínu veldi og síðast en ekki síst ljúffengt pæ fyllt með þykkri karamellusósu, bönunum og rjóma. Kjúklingabitar í kornflexmulningi með hunangssósu Kartöflubátar 7–8 kartöflur, fremur stórar 1 rauðlaukur 4 hvítlauksrif salt og pipar ólífuolía Skerið kartöflurnar í fjóra bita.Skerið rauðlaukinn í sneiðar og pressið hvítlauksrifin. Blandið öllu saman í skál með ólífuolíu og kryddið til með salti og pipar.Leggið í eldfast mót og bakið við 200°C í 40–45 mínútur. Mér finnst best að steikja kartöflurnar á pönnu í smá stund áður en ég læt þær í eldfast mót og inn í ofn.Marinering1 dós sýrður rjómi2 tsk. hunangs Dijon-sinnep½ tsk. hvítlauksduftsalt og pipar4 kjúklingabringur5 bollar kornfleks (1 bolli = 2 dl)2 tsk. hvítlauksduft2 tsk. fersk steinselja1 tsk. timíanSalt og pipar1 msk. ólífuolía Skerið kjúklingabringurnar eða kjúklingakjötið í álíka stóra bita. Skolið kjötið og þerrið mjög vel.Hitið ofninn í 200°C. Blandið sýrða rjómanum, hunangssinnepi, hvítlauksdufti, salti og pipar saman í skál. Setjið kjúklingabitana út í marineringuna og leyfið þeim að marinerast í nokkrar mínútur (því lengur því betri verður kjúklingurinn). Setjið kornflex, hvítlauksduft, steinselju, timían, salt, pipar og ólífuolíu í matvinnsluvél. Veltið kjúklingabitunum upp úr kornflexinu og þekið hvern bita mjög vel.Leggið bitana á pappírsklædda ofnplötu og bakið við 200°C í 25–30 mínútur. Þegar eldunartíminn er hálfnaður snúið þið bitunum við og dreifið smá olíu yfir þá. Berið fram með hunangssósu, kartöflubátum og fersku grænmeti, t.d. agúrku og gulrótum.Hunangssósa1 dós sýrður rjómi1–2 msk. majónes2–3 msk. Dijon-sinnep með hunangiSalt og nýmalaður pipar1 hvítlauksrif Blandið öllum hráefnum vel saman í skál eða, sem betra er, í matvinnsluvél.Ljúffengt karamellupæ250 g Digestive-kexkökur150 g smjör2 tsk. sykur50 g súkkulaðiFylling:2 krukkur dulce de leche2 bananar200 ml rjómi1 tsk. vanillusykur50 g súkkulaði Setjið kex, smjör, sykur og súkkulaði í matvinnsluvél. Hellið blöndunni í hringlaga form, helst lausbotna, og þrýstið kexblöndunni í formið og upp með hliðum á forminu. Kælið botninn í hálftíma áður en þið setjið fyllinguna í hann. Fyllið botninn með karamellunni, skerið banana í sneiðar og raðið þeim yfir karamelluna. Þeytið rjóma með smá vanillusykri og dreifið yfir pæið. Saxið dökkt súkkulaði og sáldrið yfir. Kælið pæið mjög vel áður en þið berið það fram.Makkarónur með osti250 g makkarónupasta1 msk. ólífuolía150 g beikon, smátt skorið300 g sveppir1 rauð paprika1 msk. smátt söxuð steinselja1 msk. smátt saxað timían2 msk. smjör1 laukur, sneiddur500 ml matreiðslurjómi200 ml grænmetissoð (soðið vatn + einn grænmetisteningur)100 g rifinn Parmesan-ostur100 g rifinn Cheddar-ostur1 msk. smátt söxuð steinseljaSalt og pipar Hitið ofninn í 180°C. Sjóðið makkarónupasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum. Hellið vatninu af og setjið pastað í eldfast mót. Hitið olíu á pönnu og steikið beikonið í nokkrar mínútur, bætið sveppum og papriku út á pönnu og steikið. Kryddið með salti og pipar. Saxið niður ferskar kryddjurtir og dreifið yfir.Blandið beikonblöndunni saman við makkarónupastað. Hitið smjör á pönnu, sneiðið niður einn lauk og steikið upp úr smjörinu í nokkrar mínútur við vægan hita eða þar til laukurinn verður mjúkur í gegn. Hellið matreiðslurjómanum og grænmetissoðinu saman við og leyfið sósunni að malla í nokkrar mínútur. Rífið niður Parmesan-ost og Cheddar, setjið út í sósuna og leyfið ostinum að bráðna í rólegheitum. Kryddið til með salti og pipar.Hellið sósunni yfir pastað og blandið saman með skeið. Rífið niður nóg af osti, t.d. Mozzarella og Cheddar, og dreifið yfir formið. Bakið við 180°C í 30 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn. Saxið ferska steinselju og dreifið yfir réttinn í lokin áður en þið berið hann fram.
Eva Laufey Kjúklingur Uppskriftir Mest lesið Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Bíó og sjónvarp Lifa hægara lífi í New York en á Íslandi Lífið Bein útsending: Vikulöng þrekraun Einars Lífið Nammimaðurinn er allur Lífið Niðurgangurinn á Þingvöllum þaggaður niður Lífið Fagnar átta árum án hugbreytandi efna Lífið Glæsileg folaldasýning í Skálakoti undir Eyjafjöllum Lífið Rómantík í loftinu hjá Sveindísi Jane Lífið „Sigmundur Davíð gerði ekki shit þegar hann var forsætisráðherra“ Lífið Málningartrönur á miðri götu Berlínar breyttu gangi sögunnar Lífið Fleiri fréttir Þetta borðuðu Jói Fel og frú í sex mánuði Sjá meira