Gauta þekkja flestir úr rappsenunni en nú söðlar hann um á öðrum sviðum og mun hann taka við af Auðuni Blöndal sem kynnir þáttanna Ísland Got Talent, en Auðunn hefur sinnt því hlutverki undanfarnar tvær þáttaraðir.
Gott tækifæri
„Þetta er frábært, svolítið skrítið í byrjun þegar ég fékk símtalið og allt hálf súrrealískt. Ef ég hefði ekki verið varaður við að símtalið væri að koma, hefði ég haldið að þetta væri grín,“ segir Gauti og bætir auðmjúkur við: „Maður kemst ekki hjá því að hugsa til þess að maður hafi unnið sig upp á einhvern stað fyrst maður fær að vera með í svona stóru verkefni. Þetta er mjög gott tækifæri fyrir mig.“
Gauti segist gríðarlega spenntur fyrir verkefninu, ekki síst sé horft til þeirrar staðreyndar að hann er nýbakaður faðir.
„Það er nefnilega óskrifuð regla að pabbar þurfi að gera eitthvað sem gæti orðið vandræðalegt fyrir afkvæmið seinna meir. Svo ég lít svo á að hér sé ég að haka í ákveðin box sem faðir. Þetta verður gaman.“
Annálaður athyglissjúklingur
Gauti segir verkefnið henta sér sérlega vel, en hann sé annálaður athyglissjúklingur sem njóti þess út í ystu æsar að koma fram. „Fólk hefur haft gaman af, og mikla þörf fyrir að segja við mig: „Þú kemst ekkert áfram á athyglissýkinni,“ svo mér finnst alls ekki leiðinlegt afsanna þá mýtu. Ég gengst fyllilega við minni athyglissýki,“ bendir hann á og hlær.
Hann skýtur jafnframt inn í að hann búi að býsna dýrmætri reynslu sjálfur, en hann tók þátt í Idol-stjörnuleit fyrir heilum áratug síðan. Þannig geti hann bráðlega státað af því að hafa setið beggja vegna borðsins en á þeim tíma voru félagarnir Simmi og Jói kynnar.
„Þetta er auðvitað á netinu og lesendur Fréttablaðsins geta bara flett þessu upp á YouTube. Ég tók í framhaldinu þann pól í hæðina að deila þessu sjálfur á netinu, áður en aðrir myndu gera það og taka mig þannig af lífi. En ég meina, maður á náttúrulega ekkert að vera að skammast sín fyrir að láta vaða. Og ég meina, núna eru tíu milljónir í boði,“ segir Gauti, sem hefur varla tíma til að klára spjallið.
„Ég er í þann mund að henda mér í ræktina. Ég samdi við Jón Gnarr um áskrift að Stöð 2 og korti í ræktina. Ég ætla klárlega að vera hot stöff á þessum pósterum og á skjánum,“ bætir hann við, laufléttur.
Nýjir dómarar
Lokast þar hringurinn, en undanfarna viku hafa róteringar dómnefndar verið tilkynntar og öllum úr fyrri dómnefnd skipt út en dómarar í þriðju þáttaröð Ísland Got Talent verða þau Dr. Gunni, Jakob Frímann Magnússon, Marta María Jónasdóttir og Ágústa Eva Erlendsdóttir.
„Ég er einmitt mjög spenntur fyrir að fylgjast með Jakobi og Mörtu ræða djasstónlist,“ segir Gauti glaður í bragði að lokum.
Hér má sjá Gauta spreyta sig í Idol Stjörnuleit: