Hafró lætur loðnuna njóta vafans Svavar Hávarðsson skrifar 16. október 2015 07:00 Ný aflaregla hefur verið tekin upp og má segja að loðnan njóti vafans umfram það sem löngum var. Reglan hámarkar varúðarnálgun með sjálfbærni að leiðarljósi. vísir/Óskar
Niðurstöður mælinga Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins í haust eru fjarri því lofandi um góða loðnuveiði á næstu tveimur vertíðum. Aðeins 44.000 tonn eru fyrstu tölur um heildaraflamark komandi vertíðar en ekkert verður veitt af loðnu á vertíðinni 2016/2017 að óbreyttu. Hins vegar hefur verið tekin upp ný aflaregla í loðnu sem gerir samanburð við niðurstöður rannsókna fyrri ára erfiðan á þessum tímapunkti. Bergmálsmælingar á loðnustofninum fóru fram á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni dagana 16. september til 4. október með það að markmiði að mæla stærð veiðistofns loðnu og magn ungloðnu. Loðna fannst víða í köntum og á landgrunni við Austur-Grænland, í Grænlandssundi að landgrunnsbrúninni út af Vestfjörðum, en engin loðna fannst með landgrunnsbrún norðan Íslands. Aðstæður til mælinga voru erfiðar, bæði vegna veðurs og rekíss.Jóhann SigurjónssonMjög lítið mældist af ókynþroska loðnu. Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) byggir ráðgjöf um veiðar á vertíðinni 2016/2017 á þessari mælingu á ungloðnu og ljóst er að engar veiðar verða heimilaðar að óbreyttu. Um 550 þúsund tonn mældust af kynþroska loðnu, sem gert er ráð fyrir að hrygni næsta vor og myndar veiðistofn komandi vertíðar. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir að niðurstöður mælingarinnar nú þurfi að skoðast í ljósi þess að í vor var tekin upp ný aflaregla, sem er varkárari í byrjunaraflamarki fyrir vertíðina sem er byrja, en aflareglan sem leyst var af hólmi. Spurður um forspárgildi þessarar niðurstöðu m.t.t. vertíðarinnar að ári, í ljósi ýmissa óvissuþátta, segir Jóhann að hana skuli taka alvarlega. „Léleg nýliðun er áhyggjuefni, og horfurnar fyrir vertíðina eftir rúmt ár eru ekki góðar. Ég sé ekki að það skýrist neitt fyrr en á vertíðinni 16/17, miðað við okkar venjubundna úthald rannsóknaskipa.“ Aflaregla, sem byggist á því að skilja eftir 400 þúsund tonn til hrygningar, hefur verið í gildi frá árinu 1983 en verið gagnrýnd af ICES. Árið 2009 gaf rannsóknaráðið út að hún samrýmdist ekki varúðarsjónarmiðum. Fram kemur í gögnum frá Hafró að helst hafi gagnrýnin snúið að því að hvorki var lagt mat á óvissu í bergmálsmælingum né tekið tillit til hennar í ráðgjöf. Framreikningar byggðir á ungloðnumælingum voru jafnframt gagnrýndir m.a. vegna þess hversu lágt mat var á náttúrulegum afföllum. Í janúar 2015 var farið yfir tillögu að nýrri aflareglu hjá ICES, og stjórnvöld ákváðu að taka hana hana upp í vor, enda talin vera í samræmi við varúðarsjónarmið. Tekur aflareglan tillit til óvissumats útreikninganna, vaxtar og náttúrulegrar dánartölu loðnu, auk þess sem afrán þorsks, ýsu og ufsa á loðnu er metið. „Gamla aflareglan stóðst ekki þær kröfur sem við gerum til sjálfbærrar aflareglu í dag. Það var verið að taka á því, en þetta táknar að í stað punktmælingar þar sem skilja á eftir 400.000 tonn til hrygningar þá verði 150.000 tonn skilin eftir með 95% vissu. Gamla reglan gat ekki tryggt neitt slíkt. En það er fjarri því öll nótt úti. Þegar líður á vertíðina í janúar og febrúar er mjög algengt að það finnist meira af loðnu,“ segir Jóhann en 150.000 tonn eru talin vera sú lágmarksstærð hrygningarstofns sem tryggir góða nýliðun. „Gamla aðferðafræðin hefði gefið okkur mun hærra aflamark á þessum tímapunkti. Töluvert meira,“ segir Jóhann en vill ekki gefa það upp nákvæmlega hversu mikið. Hins vegar má áætla að miðað við að 550.000 tonn mældust af kynþroska loðnu sem gert er ráð fyrir að hrygni í vor þá hefði útgefið aflamark verið allt að 150.000 tonn, þegar 400.000 tonnum hefði verið haldið til haga samkvæmt gömlu aflareglunni. Framvinda loðnuveiðanna á síðustu vertíð var óvenjuleg. Skip voru enn að veiðum djúpt út af Norðausturlandi seint í janúar á sama tíma og venjan er að á þessum tíma sé veiði hafin úr hrygningargöngu loðnunnar austur og suður af landinu. Það var hins vegar ekki fyrr en í febrúarlok sem farið var að veiða úr þéttum torfum við ströndina suðaustur af landinu. Þegar upp var staðið náðist ekki að veiða útgefið aflamark, og enn og aftur hafði loðnan undirstrikað hversu dyntótt hún er og spurningar vöknuðu um frekari rannsóknir. Jóhann bendir á að um árabil var miklu meira púðri eytt í loðnurannsóknir en nú er. Á sama tíma og hann telur nauðsynlegt að verja meiri tíma og peningum í loðnurannsóknir í dag beri þó að gæta þess að með betri tækjakosti hefur verið hægt að ná árangri við mælingar í aðstæðum í norðurhöfum sem leyfðu ekki rannsóknir á árum áður – samanber þær veðuraðstæður sem voru við rannsóknirnar nú. Hér er R/S Árni Friðriksson fyrst og síðast undir en farið var allt norður í Dumbshaf sem liggur norður undir 73. breiddargráðu við norðausturströnd Grænlands.
Fréttaskýringar Mest lesið Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Innlent Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Innlent „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Innlent Telja dagana frá síðasta innbroti Innlent Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því Innlent Von á mesta vindinum í marga mánuði Veður Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Innlent „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Innlent Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Innlent Bandaríkjamenn sagðir vilja Tony Blair við stjórnvölinn á Gasa Erlent Fleiri fréttir Dómsuppkvaðning í Gufunesmálinu og óveður í aðsigi Meirihluti íbúa ánægður með flutning stórtónleika á sunnudag Annar fulltrúa Framsóknar hættur í bæjarstjórn Kópavogs Vímuefnaneysla talin meginorsök banaslyss við Hraunsnef Stefán og Lúkas dæmdir í 17 ára fangelsi Ekki búin að ákveða hvort þjóðaröryggisráð verði kallað saman „Ég hef aldrei séð svona mikið vatn í Jökulsá“ Grindavíkurgersemin Birna Óladóttir fallin frá Kristrún í pallborði með Starmer, Carney og Albanese Hringvegurinn í sundur vegna vatnavaxta Hugmyndir kynntar um „miðstöð jaðaríþrótta“ í Toppstöðinni Telja dagana frá síðasta innbroti Rannsaka líkamsárás og fjárkúgun Gat ekki lengur lesið en sagði engum frá því „Ég má ekki heita Hrísey en ég má heita Rodriguez“ Skvísur séu almennt frekar næringarsnauðar og börnin geti orðið matvönd „Þau eru að herja á börnin okkar“ Skipulagði bæjarferðir að vestan þannig að hann kæmist í Blóðbankann Lægð sem valdi meiri usla Minna fólk á að hafa vistir til þriggja daga á heimilinu Dæmigert hundaflaut að spyrja hvort kynin séu tvö Grafalvarleg staða í Danmörku, trampólínlægð og hundaflaut Viðvörunarstig hækkað: Auknar líkur á gosi Refsing fyrir að nauðga þroskaskertum manni milduð Breytingar í vændum á skrifstofu forseta Stærðarinnar grjót féll á fjölfarinn veg Bein útsending: Farið yfir það nýjasta í krabbameinsrannsóknum „Handagangur í öskjunni“ leiddi til þess að menntskælingar fengu áfengi Skæð fuglaflensa greindist á Norðurlandi Uppsagnir hjá Norðuráli í dag Sjá meira