Lífið

Doddi flakkar úr sveit í borg í nýju myndbandi Lockerbie

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hljómsveitin Lockerbie sendi frá sér sína aðra breiðskífu í gær en hún ber heitið Kafari. Sveitin sem gaf út sína fyrstu breiðskífu, Ólgusjór, sem meðal annars kom út víðsvegar um Evrópu og Japan sumarið 2011 mun af því tilefni gefa út nýtt myndband mánudaginn 12. október við titillag plötunnar.

Platan sem hefur verið í rúmlega tvö og hálft ár í vinnslu inniheldur 10 lög og verður henni dreift frítt á vefsíðu sveitarinnar, lockerbie.is frá með 14. Október. Í framhaldi af því mun hljómsveitin setja af stað hópsöfnun á Karolina fund þar sem boðið verður upp á að kaupa plötuna á vinyl ásamt öðrum varningi tengdum sveitinni.

Myndbandið sem kemur út núna, við lagið Kafari, var unnið með frönskum videogerðarmanni sem heitir Timothée Lambrecq. Hann hefur komið nokkrum sinnum til Íslands og starfaði fyrir Grapevine í sumar við myndband- og fréttagerð. Tökurnar fóru fram á einni helgi núna í ágúst. Í myndbandinu sjáum við Dodda, söngvara hljómsveitarinnar, í ferðalagi frá sveitinni inn í borgina þar sem að hann hittir fyrir alla meðlimi hljómsveitarinnar við ýmsar sérkennilegar aðstæður. 

Myndbandið endar síðan í uppáhalds sundlaug sveitarinnar í Hafnarfirðinum. Lagið sjálft er undir miklum raftónlistar áhrifum, en á nýju plötunni ákvað hljómsveitin að skipta út strengjakvartettnum, sem notaður var mikið á fyrri plötu sveitarinnar, fyrir hljóðgervla. Önnur lög af plötunni sem eru nú þegar komin út, Eldibrandur og Heim sem sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×