„Auðvitað hefði ég viljað keppa við Nico (Rosberg). Það er vont fyrir liðið að missa annan bílinn. Ég hefði viljað hafa Sebastian (Vettel) nær til að keppa,“ sagði Hamilton á verðlaunapallinum.
„Hefði verð gaman að geta ógnað Lewis meira. Það virtist þó ómögulegt. Auðvitað hefðum við viljað hafa báða bílana í verðlaunasæti,“ sagði Vettel sem varð annar á Ferrari.
„Ég er ánægður með þetta. Þetta var svolítið erfitt undir lokin og ég hélt ég hefði tapað þessu en það er frábært að ná öðru verðlaunasæti fyrir Force India,“ sagði Sergio Perez sem varð þriðji á Force India.
„Ég reyndi að taka fram úr og þegar ég var búinn að ákveða að reyna þá var ekki aftur snúið og hann sá mig ekki koma. Ég endaði þess vegna á honum. Ég veit ekki hvort mér verður refsað, ég er ekki dómari,“ sagði Kimi Raikkonen sem var að reyna að taka fram úr Valtteri Bottas en keyrði hann út úr keppninni í staðinn.
„Ég held ekki að þetta hafi verið hefðbundið keppnisóhapp. Það er ömurlegt að tapa þriðja sætinu og fara héðan með engin stig. Ég er bara vonsvikinn. Mér er eiginlega sama hvort honum verður refsað. Ég fæ aldrei þessi stig aftur,“ sagði Bottas sem var allt annað en sáttur við samlanda sinn hjá Ferrari.

„Það er ýmislegt að fara í gegnum hausinn á mér. Það er blandað andrúmsloft. Við þyggjum þessi úrslit. Það er gaman að ná verðlaunasæti aftur. Leitt að Nico (Hulkenberg) gat ekki klárað,“ sagði Andy Stevenson, keppnisstjóri Force India.
„Við vorum eiginlega bara fyrir í upphafi. Við börðumst innbyrðis við Fernando (Alonso). Þær breytingar sem við viljum gera núna er fæstar hægt að gera á tímabilinu. Við náðum í stig,“ sagði Jenson Button sem náði níunda sæti á McLaren.
„Við erum sátt við helgina. Þetta var jákvætt, við höfum loksins náð að koma báðum bílum í stigasæti. Vonandi náum við frekari framförum í Bandaríkjunum,“ sagði Alonso sem náði síðasta stigasætinu á McLaren bílnum.
„Ég er í lagi, ég gæti ekki hlaupið maraþon akkurat núna en annars er ég góður. Ég sleppti stýrinu og spennti vöðvana og lokaði augunum og beið eftir að þetta kláraðist. Við erum að rannsaka orsök óhappsins,“ sagði Romain Grosjean sem lenti í hörðum árekstri við varnarvegg á Lotus bílnum.
Hér fyrir neðan má finna úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.