Tónlist

Nýtt myndband frá Unni Söru: Vangaveltur um hamingjuna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Unnur Sara með nýtt myndband.
Unnur Sara með nýtt myndband.
Að gleyma sér er fyrsta lagið sem tónlistarkonan Unnur Sara Eldjárn gaf út fyrir ári síðan. Það var einnig einnig á hennar fyrstu sólóplötu sem kom út í mars og ber nafnið Unnur Sara en núna hefur tónlistarkonan gefið út nýtt myndband við lagið.

„Ég samdi lagið árið 2012 en aðal inntakið í því eru vangaveltur um hamingjuna. Stundum getur verið svo gott að gleyma sér aðeins í daglegu amstri og hugsa um hvað það er margt sem er fallegt og hægt að vera þakklátur fyrir. Mér finnst takast vel að fanga þá stemningu í myndbandinu,“ segir Unnur.

Hún vann myndbandið með Inga Vífli en hann skrifaði handritið, leikstýrði og framleiddi það. Birta Rán Björgvinsdóttir stjórnaði upptökum og klippingu.

Unnur Sara hefur komið fram við hin ýmsu tækifæri eftir að platan kom út. Hún var hluti af Listhópum Hins Hússins í sumar, en þá flutti hún lögin sín víðsvegar í miðbæ Reykjavíkur með eigin gítarundirleik. Næst mun hún koma fram fjórum sinnum á Iceland Airwaves Off Venue með hljómsveit.

Myndbandið má sjá hér að neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×