Tónlist

Frumsýnt á Vísi: Lagið Howls frá Agent Fresco beint úr Eldborg

Guðrún Ansnes skrifar
Nýtt myndband einnar vinsælustu rokksveitar landsins, Agent Fresco, hefur litið dagsins ljós og er hér með frumsýnt á Vísi. Um ræðir myndband við lagið Howls, sem er á plötunni Destrier sem kom út fyrr á árinu. Myndbandið er tekið upp á og í kringum undirbúning útgáfutónleika sveitarinnar sem fram fóru í Eldborgarsal Hörpu í blábyrjun október og fékk vægast sagt frábæra dóma. Sagði Arnór í samtali við Fréttablaðið að loknum tónleikum að tilfinningarnar hafi borið hann ofurliði og þessi stund yrði ekki endursköpuð aftur, en má með sanni segja að myndbandið komist ansi nálægt því, slíkur er krafturinn.

„Ég held að þetta hafi verið síðasta lagið sem ég samdi fyrir þessa plötu. Ég áttaði mig á að allt fram að þessu lagi hafði ég verið mjög melankólískur, enda nýkominn úr löngu sambandi svo það getur hafa haft áhrif. Þannig að ég ákvað að lokalagið yrði tekið með trompi, skellti inn trompeti og vildi hafa það eins energískt og mögulegt er,“ segir Þórarinn Guðnason, gítarleikari Agent Fresco um lagið.

Arnór Dan sá um að fylla líflega laglínuna orðum og segist vanur því að elta tilfinningarnar sem spretta innra með honum þegar hann heyri laglínuna og hljóðfærin saman hverju sinni. „Þessu lagi gæti ég líkt við mína persónulegu flóttaleið aftur í fortíðina, aftur í sakleysið,“ útskýrir Arnór. „Þetta lag er bleikt ský til að tylla sér á, smá afturhvarf til notalegrar nostalgíu. Þegar ég flyt það live, finnst mér ég aftur orðinn krakki. Þetta er verulega skemmtilegt, líkt og sést í myndbandinu.“

Arnór segist alsæll með myndbandið, en leikstjórinn Baldvin Z sá um að leikstýra því. „Ég er mjög spenntur að segja svo frá því að tónleikarnir voru allir teknir upp og verða sýndir á Stöð 2 síðar á árinnu,“ segir hann að lokum.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Stund sem aldrei verður endursköpuð

Arnór Dan, söngvari Agent Fresco, segist hafa fengið sjokk á sviðinu þegar eitt lag var eftir, þar sem hann féll í algeran trans á sviðinu og rankaði ekki við sér fyrr en á lokametrunum. „Stund sem ég gleymi aldrei.“

Spilar tuttugu og þrisvar sinnum á fimm dögum á Airwaves

Eftirsóttustu menn Airwaves 2015 „Svo þegar maður byrjar á lokalaginu, þá veit maður að maður er orðinn of seinn á næsta gigg,“ segir Hrafnkell Örn Guðjónsson trommari, sem spilaði á flestum viðburðum í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×