Verðlaunaafhending meistaratitla akstursíþrótta fór fram á lokahófi Akstursíþróttasambands Íslands sem haldið var síðasta laugardag. Í lokahófinu voru krýndir Íslandsmeistarar í öllum greinum akstursíþrótta. Eftir tilnefningar frá keppnisráðum einstakra greina og netkosningu kaus Formannafundur AKÍS eina konu og einn karl sem akstursíþróttamenn ársins.
Akstursíþróttamaður ársins á meðal kvenna var Anna María Sighvatsdóttir og Snorri Þór Árnason á meðal karla. Þessi tvö eru tilnefnd af AKÍS til kjörs íþróttamanns ársins 2015. Lokahóf Akstursíþróttasambands Íslands var haldið í umsjón Kvartmíluklúbbsins í Fram heimilinu í Reykjavík.
Þetta ökufólk var verðlaunað á lokahófinu:
Drift - Þórir Örn Eyjólfsson AÍH
GoKart - Hinrik Wöhler AÍH
Rally – Aðstoðarökumenn 4X4 non turbo - Hanna Rún Ragnarsdóttir BÍKR
Rally – Aðstoðarökumenn jeppaflokkur - Anna María Sighvatsdóttir BÍKR
Rally – Aðstoðarökumenn heildin - Aðalsteinn Símonarson BS
Rally – Ökumenn 4X4 non turbo - Baldur Arnar Hlöðversson BA
Rally – Ökumenn jeppaflokkur - Þorkell Símonarson BÍKR
Rally – Ökumenn heildin - Baldur Haraldsson BS
Rallycross – 2000 flokkur - Skúli Pétursson AÍH
Rallycross – 4WD króna - Páll Jónsson AÍH
Rallycross – Unglingaflokkur - Arnar Hörður Bjarnason AÍH
Rallycross – Opinn flokkur - Gunnar Bjarnason AÍH
Kvartmíla OF - Leifur Rósenbergsson KK
Kvartmíla ST - Sigurður Ólafsson KK
Kvartmíla TS - Garðar Ólafsson KK
Götuspyrna 8 cyl. standard - Arnar Sigursteinsson BA
Götuspyrna 8 cyl. + - Leonard Jóhannsson BA
Götuspyrna Jeppar -Grétar Óli Ingþórsson BA
Sandspyrna – Opinn flokkur - Grétar Franksson KK
Sandspyrna – Fólksbílar - Daníel G Ingimundarson TKS
Sandspyrna – Jeppaflokkur - Stefán Bjarnhéðinsson BA
Torfæra – Götubílar - Ívar Guðmundsson TKS
Torfæra – Sérútbúnir götubílar - Bjarki Reynisson BA
Torfæra – Sérútbúnir - Snorri Þór Árnason TK
Aukaverðlaun
Rally Ökumenn - Nýliði ársins - Ólafur Þór Ólafsson
Rally Aðstoðarökumenn - Nýliði ársins - Pálmi Jón Gíslason
Torfæra Nýliði ársins - Geir Evert Grímsson

