Hinn tvöfaldi höfundur Ásdís Sigmundsdóttir skrifar 19. nóvember 2015 14:30
Bækur Heimska Höfundur Eiríkur Örn Norðdahl Mál og menning Bók Eiríks Arnar Norðdahl, Heimska, er lokaverk í þríleik sem hófst á Gæsku (2009) sem fjallaði um fortíðina, Illsku (2012) sem fjallaði um samtíðina og svo þessi sem á að gerast í framtíðinni. Eðli tímans í atburðarás er eitt umfjöllunarefni bókarinnar og hefst einn kafli bókarinnar á augljósri staðhæfingu sem tengir þetta saman: „Samtíðin er framtíð fortíðarinnar“ (23). Enda er það svo að sú framtíð sem bókin lýsir er afskaplega lík samtímanum, það er aðeins búið að skrúfa upp í nokkrum einkennum hennar. Ef ekki væri fyrir hið svokallaða eftirlit, myndavélar sem fylgjast með hverju mannsbarni allan sólarhringinn, þá er sá heimur sem lýst er og fólkið þar ekkert frábrugðið því sem við sjáum í dag. Bókmenntakerfið virkar eins, partíin og menningin, sambönd og samfélag. Kannski er eini raunverulegi munurinn að í þessum heimi er refsirammi fyrir hefndarklám. Sjónarhornin sem höfundur notar eru mörg: Sjónarhorn sögumannsins sem fjallar almennt um þær pælingar sem eru í gangi, sjónarhorn aðalpersónanna, sjónarhorn aukapersóna sem tengjast þeim og atburðunum beint og jafnvel sjónarhorn aukapersóna sem eru nánast ótengdar atburðum sögunnar. Þessi frásagnaraðferð minnir á fyrrgreint eftirlit, myndavélar sem fylgja öllum í söguheiminum eftir. Það er ekkert alltaf verið að fylgjast með öllum (hver hefði svo sem áhuga á því eins og sögumaður bendir á) en möguleikinn er til staðar og það er hægt að færa sjónarhornið á milli einstaklinga og fylgjast með þeim í smá stund áður en farið er yfir á næsta. Sjónarhorn allra koma saman til að mynda heildarsögu þó að alls ekki allt sem fylgst er með hafi merkingu í samhangandi atburðarás. Því er frásagnarform verksins þannig að söguþráðurinn kemur í ljós í brotum og út frá mismunandi sjónarhornum. Persónur Eiríks eiga það til að vera frekar dæmigerðar en í þessari bók notar hann aðferð sem gerir það að verkum að persónurnar verða mun margræðari. Ég les Áka og Lenítu, rithöfundaparið sem sagan fjallar í meginatriðum um, sem tvær útgáfur af sömu persónunni, Rithöfundinum, og er margt í bókinni sem styður þá greiningu. Þetta gerir það að verkum að pælingar bókarinnar um persónur og starf höfundarins verða margþættari og mun meira spennandi en annars væri. Stíllinn í Heimsku er lágstemmdari og knappari en í fyrri bókum höfundar og virðist það vera þróun sem hann er markvisst að vinna að. Það er að mörgu leyti góð þróun og enn má sjá dæmi um skemmtilega orðanotkun höfundar en þó finnst mér bókin ekki eins kraftmikil og fyrri bækur hans. Það er einnig tæpt á mörgum áhugaverðum pælingum í þessari bók og sumar þeirra hafa verið miðlægar í öðrum framtíðarpælingum. Hvaðan koma hugmyndirnar og er hægt að eiga hugmynd? Hver má fjalla um hvað í listum? Hver eru tengsl lista við raunveruleikann? Hver er tilgangur listarinnar? En það er því miður ekki farið neitt sérlega langt með þessar pælingar. Tilfinningin er sú að Eiríkur Örn hafi lagt upp með hugmynd að þríleik um fortíð, samtíð og framtíð en þegar kom að þessum síðasta hluta þá hafi hann ekki tengt almennilega sjálfur við hugmyndina. Sem gæti skýrt af hverju bókin náði ekki að halda mér þrátt fyrir að margt í aðferð og framsetningu sé mjög áhugavert. Karlkyns og kvenkyns Rithöfundurinn er flott hugmynd og sömuleiðis pælingar um eftirlitssamfélagið en einhvern veginn vantar slagkraftinn í útkomuna.Niðurstaða: Áhugaverð hugmynd og framsetning en frekar máttlaus úrvinnsla.
Mest lesið Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum Lífið Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Lífið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Ekki á leið í samband bara til að þóknast samfélaginu Lífið Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp Stóri plokkdagurinn haldinn á sunnudaginn Lífið Viltu vinna skemmtilegar gjafir fyrir sumardaginn fyrsta? Lífið samstarf „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Tónlist Svarar því hve mörg páskaegg þurfi að borða til að bæta á sig kílói Lífið Sjálfið okkar: Að verða okkar besta útgáfa Áskorun Fleiri fréttir Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Fjöldi fólks á opnun fölsuðu verkanna Mario Vargas Llosa fallinn frá Alls 38 milljónum króna úthlutað úr Myndlistarsjóði Sá stórt tækifæri í fjárfestingarhlið listarinnar Klukkur og kaffibollar í partýi á Prikinu „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak „Ég verð dauður áður en kvikmyndahúsin loka“ Lovísa Ósk nýr listdansstjóri Íslenska dansflokksins Vonar að tæknin taki aldrei yfir innsæi og ástríðu Tekur við sem verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu Íslensku myndlistarverðlaunin: Pétur, Helena og Erró heiðruð „List er okkar eina von“ Skálað fyrir skíthræddri Unni Sjóðheitir listamenn mynda sterka heild Rif eftir Önnu Júlíu sigraði og verður á Héðinsreit Gerir upp tólf ára samband við barnsmóður sína með sýningu og bók Samtal við þann fyrsta til að taka ljósmyndir á Íslandi Tilnefningar til íslensku myndlistarverðlaunanna Birgitta Björg, Ingunn og Rán Flygenring fengu Fjöruverðlaun Tjörnin trónir á toppnum Borgarstjórar og forsetar á ólgandi listasýningu Hendur sem káfa, snerta og breyta „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Sjá meira
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
Íslendingurinn á bak við tugmilljarða myndina: „Þetta er eiginlega fram úr öllum vonum“ Bíó og sjónvarp