Rosberg stóðs áhlaup Hamilton í ræsingunni, þeir voru samsíða í gegnum fyrstu beygju. En komust klakklaust þar í gegn.
Carlos Sainz missti afl á leiðinni út á brautina og þurfti að ræsa frá þjónustusvæðinu. Hann komst þó ekki langt á Toro Rosso bílnum. Hann kláraði aldrei fyrsta hringinn.
Hamilton nálgaðist Rosberg. Svo virtist sem Rosberg væri að reyna að aka eins hægt og hann kæmist upp með til að rugla í keppnisáætlun liðsfélaga síns, Hamilton.
Hamilton kvartaði yfir því að hann kæmist ekki fram úr og vildi aðra keppnisáætlun til að hjálpa sér að komast fram úr Rosberg. Mercedes svaraði að hann fengi ekki aðra áætlun en gæti reynt að teygja lífið í dekkjunum lengur en Rosberg. Þannig gæti hann verið á ferskari dekkjum undir lokin.

Ferrari setti sína menn á sitthvora keppnisáætlunina. Kimi Raikkonen reyndi að komast upp með tvö þjónustuhlé en Vettel stoppaði þrisvar og notaði mjúku dekkin til að græða smá tíma á milli stoppa tvö og þrjú.
Rosberg og Hamilton glímdu síðustu 20 hringi keppninnar á ferskum dekkjum. Þeir þurftu að þræða ansi marga hringaða bíla.
„Ekki tala meira við mig,“ sagði Rosberg í talstöðinni þegar 13 hringir voru eftir. Honum var að takast að auka bilið í Hamilton. Hann vildi ekki láta trufla sig meira.
Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.