Stimpluð drusla sem busi og kölluð sjálfsalinn Snærós Sindradóttir skrifar 14. nóvember 2015 07:00 Álfheiður Marta Kjartansdóttir er fyrst núna að byrja að tala um eineltið sem hún varð fyrir í framhaldsskóla. Svo virðist sem tilviljun ein hafi ráðið því að hún var tekin fyrir en ekki einhver annar. VÍSIR/GVA
Við upphaf skólagöngu sinnar í Menntaskólanum við Hamrahlíð var Álfheiður Marta Kjartansdóttir tekin fyrir í fréttablaði nemendafélagsins, Fréttapésa, og stimpluð drusla. Hún var sextán ára gömul og hafði sér það til saka unnið að kyssa stráka í nemendafélagsferð skólans. Stimpillinn átti eftir að loða við hana út skólagönguna.Umbrot/Silja Ástþórsdóttir „Á þessum tíma hafði ég eiginlega ekki verið með neinum strák. Ég var bara saklaus sextán ára stelpa og það höfðu eldri strákar áhuga á mér, strákar sem ég leit upp til.“ Álfheiður hafði verið valin sem busi inn í myndbandaráð skólans. Ferðinni var heitið í nemendafélagsferð sem hefur orð á sér fyrir að vera rosaleg. „Ég var eina stelpan í ráðinu og bað strákana um að kaupa handa mér einn vodkapela. Það endaði með því að ég drakk tvo þriðju af pelanum og man lítið af því sem gekk á þarna. Þetta var eitt af fyrstu fylleríunum mínum og ég kyssti fjóra stráka. Það er kannski ekki eitthvað sem ég myndi gera í dag en þannig var bara stemningin. Það voru til dæmis bókstaflega allir í sleik á böllum,“ segir Álfheiður.„Einn þeirra fór með mig afsíðis til að passa upp á mig, að eigin sögn því ég var orðin svo full. Meira að segja hann byrjaði að kyssa mig. Ég bað hann að hætta og hann baðst afsökunar. Svo er þessi strákur partur af vinahópnum sem tók mig frekar mikið fyrir.“„Sleikti stráka í stórfélagi“ Ekki löngu eftir nemendafélagsferðina birtist mynd af Álfheiði á nemendafélagssíðu skólans. Það var í fyrsta sinn sem hún var kölluð sjálfsalinn. „Ég skildi ekkert hvað þetta var. Vinur minn kommentar svo undir að ég hafi ekki gert neitt af mér á þessu balli og það skapast miklar umræður við myndina. Einhver segir að ég sé enginn sjálfsali en þá kemur athugasemd frá nemendaráði í skólanum sem segir: „Nei, maður setur pening í sjálfsala.““ Stuttu eftir þetta kemur svo út fyrrnefndur Fréttapési. „Þar er mynd af mér þar sem ég er að kyssa strák með fyrirsögninni „Sjálfsalinn fær sér eina með öllu“. Í blaðinu voru líka jólasveinavísur og ein var um mig:Sjálfsalan sú fyrstaSafarík og meirSleikti stráka í stórfélagiNíu voru þeirÞað héldu allir að ég hefði gert eitthvað meira en að kyssa þessa stráka. Áður en ég vissi af voru farnar að ganga sögur um að ég hefði sofið hjá þessum og hinum sem ég gerði alls ekki.“Starað á göngunum„Ég man eftir því að hafa gengið á göngunum og fólk horfði á mig. Á þessum tíma skammaðist ég mín viðbjóðslega og mér leið hræðilega. Þetta var svo sárt því ég kom inn í skólann og þekkti ekki marga. Ég vissi ekkert hver ég var og hvað ég vildi,“ segir Álfheiður. Fréttapési hafði orð á sér fyrir að láta allt flakka. Á heimasíðu nemendafélagsins í dag segir að blaðið sé slúðurblað MH-inga sem sé gefið út nokkrum sinnum á önn. Aðgát skuli höfð í nærveru þeirra sem gefa blaðið út hverju sinni. Á meðal annars efnis í blaðinu í gegnum árin var stelpa sem var sögð hafa svo stór brjóst að þau væri hægt að nota sem kodda og stúlka með höfuð fest á ryksugu. Það þarf ekki mjög þróað ímyndunarafl til að skilja myndlíkinguna. Það sem virtist vera svæsið grín í byrjun vatt upp á sig og lét Álfheiði ekki í friði næstu árin. „Það leið langur tími þar til ég gat verið með einhverjum strák aftur. Og í hvert sinn sem ég var með einhverjum fékk ég samviskubit því ég væri drusla. Ég mátti líka bóka að ef ég eignaðist kærasta, einhverjum árum seinna, þá myndi hann frétta af þessu fljótlega. Vinkonur vinkvenna minna, sem ég hafði aldrei hitt og voru í öðrum skólum, voru að spyrja þær hvort ég væri ekki algjör drusla.“Skömmin gríðarleg„Ég upplifði bara að ég ætti þetta næstum skilið. Ég talaði aldrei um þetta við neinn og hristi þetta af mér en fyrst núna er ég að skilja hvað þetta hafði mikil áhrif á mig. Ég hef aldrei getað talað um þetta því ég finn svo mikla skömm enn þá.“ Álfheiður upplifði meðal annars að vera læst inni á klósettbás á balli af eldri stelpum sem sögðust ekki „hleypa litlum druslum út“. Hún segir að í raun hafi aldrei neinn komið henni til varnar. „Ef ég var með einhverjum strákum þá fóru þeir með mig afsíðis svo enginn sæi að þeir væru að kyssa sjálfsalann. Meira að segja strákurinn sem var hrifinn af mér á þessum tíma gat varla talað við mig á göngunum.“ „Ég skil eiginlega ekki enn þá af hverju það var ég sem var tekin svona rosalega fyrir. Ég er alltaf að hugsa um að gera ekki eitthvað vitlaust svo fólk fari ekki að tala um mig. Alltaf á varðbergi. Ég man hvernig þetta fólk horfði á mig á göngunum þótt það sé löngu búið að gleyma því.“ Það var svo í #freethenipple-flóðbylgjunni sem Álfheiður setti inn mynd af sér og skrifaði við „kveðja, Sjálfsalinn“ og fékk mikil viðbrögð frá fyrrverandi skólafélögum. Einhverjir báðu hana afsökunar á eineltinu, nú sex árum síðar. „Ég er ekki reið við neinn í rauninni. Ég veit að þau voru alveg jafn ung og vitlaus og ég. En ég þarf alltaf að segja sjálfri mér að þetta hafi ekki átt rétt á sér. Að ég hafi ekki átt þetta skilið.“Konum leyfist minna„Það virðist vera sem konur hafi ekki sama leyfi og karlar og drengir til að vera kynverur og allra síst á sínum eigin forsendum,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rithöfundur og baráttukona. „Ef stelpa ákveður að stunda kynlíf eða standa í einhvers konar kynferðislegum samskiptum þá er henni oft refsað fyrir það félagslega á miklu djúpstæðari hátt en drengjum. Þetta erum við að sjá staðfest með afskaplega skýrum hætti í til dæmis hrelliklámi. Þar sjáum við mjög afdráttarlaust hvernig stúlkur eru í raun auðmýktar, kallaðar nöfnum og mannorðsmyrtar á netinu. Það eru jákvæð tákn á lofti engu að síður. Mér finnst sú kynslóð sem núna er farin að láta í sér heyra, unga fólkið sem er í fararbroddi umræðunnar, í raun vera að skera upp herör gegn þessari skömm, með því að nota #freethenipple átakið og fleiri leiðir til að segja „ég má vera kynvera, ég má eiga mig sjálf, án þess að það sé í lagi að dæma mig fyrir það“,“ segir Þórdís.
#FreeTheNipple Mest lesið Rúrik á batavegi eftir aðgerð Lífið Fólki þyki erfiðast að setja mæðrum og tengdamæðrum mörk Lífið Grey‘s Anatomy-stjarna greindist með MND Lífið Einhleypan: Ást þegar manni er tekið eins og maður er Makamál Huggulegustu leikarar landsins undir einu þaki Lífið Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Lífið „Enduðum á að kyssast í skrifstofustólnum hans“ Lífið Ofurskvísur eins klæddar á ofurskvísuæfingu Lífið Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla Lífið Lúxus heilsulind á heimsmælikvarða fyrir Íslendinga Lífið samstarf Fleiri fréttir Segir frumburðinn með nefið hans pabba Ingi Bauer og VÆB menn reyndu að semja sumarsmell á staðnum Rúrik á batavegi eftir aðgerð Grey‘s Anatomy-stjarna greindist með MND Fólki þyki erfiðast að setja mæðrum og tengdamæðrum mörk Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Huggulegustu leikarar landsins undir einu þaki Ofurskvísur eins klæddar á ofurskvísuæfingu Mundi ekki hver stýrði Newcastle United um aldamótin Einstök geymslutiltekt á Birkimel: „Hlutirnir hjálpa mér að muna“ Eiginkona bassaleikara Weezer skotin af lögreglu Stórglæsilegir vinningar í Páskabingói Blökastsins „Enduðum á að kyssast í skrifstofustólnum hans“ Bíó Paradís valið eitt af 21 svölustu kvikmyndahúsum heims Margrét selur hönnunarperlu í Skerjafirði Söngnemendur á Hvolsvelli með Kabarett Íslandsmet? Eiga sex barnabörn í leikskólanum á Vopnafirði Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla Draumur breska þríeykisins rætist á Húsavík Pitsurnar til styrktar minningarsjóðnum rjúka út Eyddu undir hundrað þúsund krónum í matarinnkaup í desember Heillandi sumarhús úr smiðju Leifs Welding: Jensen rúm fylgir með kaupunum Katrín Halldóra fyllir í stóra skó Segir óheilbrigt að pör djammi mikið hvort í sínu lagi Innlit í rúmlega 270 milljóna króna þakíbúð á Orkureitnum Svona var fjögurra rétta matseðillinn Líkaminn þarf ekki að vera fullfrískur til að upplifa unað Guðni Th. orðinn afi Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Sjá meira
Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Lífið
Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Lífið