Volvo XC90 R-Design frumsýndur á laugardaginn Finnur Thorlacius skrifar 26. nóvember 2015 11:03 Volvo XC90 R-Design.
Brimborg frumsýnir nýjan Volvo XC90 R-Design á laugardaginn milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Volvo, Bíldshöfða 6 í Reykjavík. Volvo XC90 hefur fengið einstakar móttökur um heim allan. Honum var ætlað að marka nýtt upphaf fyrir Volvo og það hefur hann svo sannarlega gert. Nú er komið að því að kynna þennan stórglæsilega 7 manna lúxusjeppa í R-Design sport útfærslu. XC90 státar af nýrri vélatækni, nýjum öryggiskerfum og nýju útliti en R-Design útfærslan sveipar bílinn enn sportlegra yfirbragði. Grill bílsins og framstuðari eru með sérstöku R-Design útliti, innfelldir púststútarnir eru tvöfaldir og á bílnum eru innfelldir álklæddir þakbogar. Hliðarspeglarnir eru állitaðir og þokuljós eru í framstuðara. Bíllinn kemur á 20” R-Design álfelgum og er búinn fimm valmöguleikum fyrir vél og gírkassa (Comfort, Eco, Dynamic, Off-road eða Individual). Veghæð XC90 er mjög mikil, eða 23,7 cm undir lægsta punkt. Mikið er um lúxus í innra rými bílsins. Má þar nefna sérstök R-Design sportsæti og stýri, 12,3” TFT mælaborð, Metal Mesh klæðningu í mælaborði, High Level LED lýsingu, upplýsta sílsalista, rafdrifin framsæti og svartan topp í innréttingu. Eldsneytisnotkun nýju D5 dísilvélarinnar í blönduðum akstri er 5,8 l/100 km og CO2 losun er 152 g/km. Brimborg hvetur áhugsama að koma á frumsýningu á laugardaginn, gæða sér á gæðakaffi frá Kaffitár og kynna sér bíl ársins 2016 á Íslandi.
Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Erlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent