Tónlist

Berjast um titilinn DJ Íslands

Bensol, Formaðurinn, Yamaho og Ewok takast á um titilinn DJ Íslands.
Bensol, Formaðurinn, Yamaho og Ewok takast á um titilinn DJ Íslands.
Plötusnúðarnir Bensol, Formaðurinn, Yamaho og Ewok eru íslenskum tónlistarunnendum góðu kunnir enda hafa þeir verið meðal fremstu plötusnúða landsins í áraraðir.

Nú á aðventunni ætla þessir þekktu plötusnúðar að mætast í einstökum einvígum þar sem þeir takast á um titilinn „DJ Íslands“ og Fernetbikarinn en Fernet Branca er styrktaraðili keppninnar. Maggi Legó er núverandi titilhafi og mun hann mæta á lokakvöldinu 1. janúar og verja titilinn.

Undanúrslitakvöldin verða þrjú og fara þau fram á skemmtistaðnum Paloma næstu þrjá sunnudaga. Á fyrsta undanúrslitakvöldinu, 6. desember, mætast DJ Yamaho og Formaðurinn.

Natalie og Formaðurinn ríða á vaðið á sunnudaginn.
Keppnin fer þannig fram að hvor keppandi fær ákveðinn tíma til að heilla áhorfendur með lagavali og samsetningu. Verður síðan dæmt eftir stemmningu og fagnaðarlátum en kynnir og dómari er Árni Sveinsson.

„Í vinstra horninu er hin eina sanna dansdrottning okkar Íslendinga. Sjálf svarta prinsessan og technotæfan, engin önnur en DJ Yamaho. Mærin sú er dansþyrstum vel kunn hér á klakanum og þó víðar væri leitað fyrir mikla færni á fónunum og einstakan sjarma. 

Í hægra horninu er það Formaðurinn sjálfur sem beið lægri hlut á móti Herb Legowitz í síðustu rimmu en kemur tvíefldur til leiks og mun ekki gefa þumlung eftir frekar en fyrri daginn,“ segir í tilkynningu um fyrsta kvöldið frá aðstandendum Sunnudagsklúbbsins, sem heldur keppnina. 

Sunnudagskvöldið 13. desember munu síðan plötusnúðarnir Bensol og Ewok mætast. 20. desember mætast síðan sigurvegarar undanúrslitakvöldanna og takast á um hver mætir Magga Legó á nýárskvöld.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um undanúrslitakvöldið á sunnudag á Facebook-síðu viðburðarins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×