Lífið

Bryan Ferry á leið í Hörpu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Bryan Ferry í þrumustuði.
Bryan Ferry í þrumustuði. Vísir/Getty
Stórsöngvarinn Bryan Ferry er á leiðinni til landsins og heldur tónleika í Eldborg í Hörpu í maí á næsta ári. Ferry tróð síðast upp hér á landi á tvennum tónleikum, fyrir þremur árum. Þá var honum mjög vel tekið og fékk hann meðal annars fimm stjörnur fyrir frammistöðuna frá gagnrýnanda Fréttablaðsins. Ferry á að baki um fjögurra áratuga feril í tónlist, en hann sló fyrst í gegn með sveitinni Roxy Music í upphafi áttunda áratugar síðustu aldar.

Ferry hefur alls tekið þátt í gerð 31 breiðskífu á ferlinum og hefur hann hannað umslögin utan um margar þeirra. Hann hefur einnig starfað á sviði tísku, meðal annars starfað með verslanakeðjunni H&M.

Tónleikarnir, sem fara fram þann 16. maí, eru liður í Evróputúr Ferry. Mikill fjöldi tónlistarmanna og sviðsmanna ferðast með söngvaranum og mun hann spanna allan feril sinn í Hörpu. Í fyrra sendi hann frá sér plötuna Avonmore, sem fékk góða dóma. Platan fékk meðal annars fjórar stjörnur frá gagnrýnanda The Guardian.

Ferill Ferry í nokkrum punktum

Bryan Ferry  hefur sent frá sér 13 breiðskífur á sólóferli sínum.

41 ár er á milli fyrstu og síðustu breiðskífu Ferry.

Ferry hefur komið að 31 breiðskífu á ferlinum.

Hljómsveitin Roxy Music tók sér hlé í 28 ár, en sveitin starfaði ekki saman frá 1983 til 2001. Sveitin hefur komið nokkrum sinnum saman síðasta áratuginn.

Hlustað hefur verið 9 milljón sinnum á vinsælasta Ferry á Spotify en það er lagið Slave to Love. 




Tengdar fréttir

Firnagóður Ferry

Bryan Ferry heillaði troðfullan Eldborgarsal á sunnudagskvöldið. Ferry lék á alls oddi og sýndi að hann á nóg eftir. Á heildina litið firnagóðir tónleikar sem stóðust allar væntingar – og þær voru miklar!

Ferry sleikti sólina á Kaffi París

Breski tónlistarmaðurinn Bryan Ferry fékk góðar móttökur er hann lagði undir sig sviðið í Eldborgarsal Hörpu á sunnudagskvöldið. Fyrir tónleikana sleikti Ferry sólina í Reykjavíkurborg þar sem hann settist meðal annars út á Kaffi París og lét sig ekki muna um að skrifa nokkrar eiginhandaráritanir til aðdáenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×