Tónlist

Berlin X Reykjavík á næsta leiti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fer fram í janúar.
Fer fram í janúar. Vísir
Berlin X Reykjavík 2016 verður haldin í annað sinn dagana 22.-24. janúar í Berlín á hinum magnaða tónleikastað Badehaus. Einnig munu tónleikar fara fram á hinum frábæra stað Michelberger.

Hátíðin mun svo færa sig yfir til Reykjavíkur helgina eftir dagana 28.-30. janúar. Tónleikarnir í Reykjavík munu fara fram á Húrra. Dagskráin er ekki af verra endanum en listamenn á borð við: Studnitzky, Eyþór Gunnarsson, Samúel Jón Samúelsson, Sísý Ey, Stereo Hypnosis, Dj Flugvél & Geimskip, Berndsen, M-Band, Epic Rain, Futuregrapher o.fl. munu troða upp.

Berlin X Reykjavík gekk vonum framar í febrúar síðastliðnum og er mikil spenna að endurtaka leikinn á komandi ári. Listmenn á borð við: Emilana Torrini, Skúli Sverrisson, ADHD, Stereo Hypnosis, Jazzanova, Claudio Puntin, Christian Prommer o.f.l. tróðu upp í febrúar síðastliðin.

Berlin X Reykjavik er hugarfóstur þeirra Pan Thorarensen & Sebastian Studnitzky.

Miðasalan fyrir Berlin X Reykjavik 2016 hefst 3. janúar á midi.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×