Lífið

Kanadískur kór söng til sýrlensku flóttamannanna

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fólk um allan heim hefur heillast af söng barnanna.
Fólk um allan heim hefur heillast af söng barnanna. skjáskot
Myndband af flutningi kanadísks kórs á arabísku þjóðlagi fór á flug um helgina í kjölfar móttöku landsins á sýrlenskum flóttamönnum.

Í myndbandinu sem rataði á Youtube á föstudag má sjá fjölmennan kór syngja lagið Tala‘ al-Badru ‘Alayna í École Secondaire Publique De La Salle í kanadísku höfuðborginni Ottawa.

Flutningurinn fór fram fyrr í mánuðinum og þegar fyrstu fregnir tóku að berast af myndbandinu var talið að lagið hafi verið flutt til að heiðra flóttamennina sýrlensku.

Stjórnandi kórsins, Robert Filion, sagði þó að sú hafi ekki verið hugmyndin. Ákvörðun um að setja lagið á efnisskránna hafi verið tekin löngu áður en kanadísk stjórnvöld ákváðu að taka á móti 25 þúsund flóttamönnum. Lagið hafi þó verið tileinkað þeim á tónleikunum.

Þetta kemur fram í frétt CBC af máinu. Þar er einnig greint frá því að lagið fjalli um von og sé mörgum múslimum hjartfólgið. Sagan segir að lagið hafi verið sungið fyrir Múhammeð er hann flúði frá Mekku til Medínu á sjöundu öld.

„Á hverju ári reynum við að snerta á fjölbreyttum menningarheimum og í ár ákváðum við að velja lag sem innblásið væri af Íslam,“ sagði Filion í samtali við CBC. „Við völdum þetta lag og þið þekkið framhaldið.“

Horft hefur verið á myndbandið tæplega 800 þúsund sinnum en það má sjá hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×