Fyrstu myndir af nýjum Panamera Finnur Thorlacius skrifar 10. desember 2015 09:44 Gerbreyttur afturendi Panamera. worldcarfans
Náðst hafa myndir af nýjum Porsche Panamera og á þeim sjást nokkrar breytingar á bílnum, sérstaklega afturenda hans sem sannarlega léttir yfirbragð bílsins. Nýr Panamera fær ekki bara nýjan MSB undirvagn, heldur léttist bíllinn um hátt í 100 kíló með aukinni notkun áls og hástyrktarstáls. Ennfremur fær bíllinn nýjar og eyðslugrennri V6 og V8 vélar sem þróaðar eru innanhúss eins og á við flestar vélar í Porsche bílum. Eyðslugrennst verður Panamera S E-Hybrid útfærslan og er hann knúinn rafmótorum til aðstoðar brunavél. Fyrr á þessu ári skráði Porsche einkaleyfi á GT5 nafninu og bjuggust flestir við því að það væri gert fyrir mjög öfluga útfærslu Panamera. Það hefur ekki fengist staðfest og víst er talið að slík útfærsla yrði ekki kynnt samhliða kynningu nýrrar kynslóðar Panamera. Forstjóri Porsche hefur sagt að ný Panamera verði kynnt á bílasýningunni í Genf í mars á næsta ári. Búist er við bílnum á markað á seinni helmingi næsta árs.
Mest lesið Úlfar hættir sem lögreglustjóri Innlent Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Innlent Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Innlent Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Innlent Dr. Bjarni er látinn Innlent Geyma fjöldann allan af fullum bensínkútum í bíl í Hlíðunum Innlent Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Innlent Þakkantinum var haldið saman með kústskafti Innlent Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Innlent Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Innlent