Sunnudagsklúbburinn í samstarfi við PartyZone stendur fyrir rosalegu partýi á Paloma á laugardagskvöldið en það ber einfaldlega nafnið Jólagestir formannsins.
Veislustjóri kvöldsins verður Óli Hjörtur. Hugarástand (Arnar & Frímann) spila í kjallaranum og Dj Margeir, Tommy White og Formaðurinn munu halda uppi stuðinu á efri hæðinni.
Strákarnir í Vibes hita mannskapinn upp en 20 ára aldurstakmark verður inn á Paloma.