Skólastjórar eru faglegir leiðtogar skólastarfs samhliða því að stýra daglegum rekstri og fara með yfirstjórn skólastofnana. Það er því mikilvægt að fagleg sjónarmið með áherslu á skýrar hæfniskröfur stýri ráðningum skólastjóra leikskóla og grunnskóla. Þess vegna lagði meirihluti Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar fram tillögu á dögunum um að ráðningar þeirra verði í framtíðinni á hendi stjórnanda fagskrifstofu en ekki pólitískt kjörinna fulltrúa eins og verið hefur. Með tillögunni, sem samþykkt var í ráðinu 1. apríl, er undirstrikað að skólastjórar í leik- og grunnskólum í Reykjavík skuli ætíð ráðnir á faglegum forsendum og að hlutverk kjörinna fulltrúa sé að móta leikreglur og hafa eftirlit með framkvæmdinni. Þá voru einnig samþykkt viðmið um verklag við ráðningaferli þeirra.
Tillagan er í samræmi við ábendingar úttektarnefndar á stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar frá 2013. Þar var gagnrýnt að ósamræmi væri í ráðningamálum hjá borginni sem auki hættu á að pólitísk sjónarmið fremur en fagleg ráði för við ráðningu starfsmanna. Ákvörðun skóla- og frístundaráðs frá 1. apríl dregur úr þessu misræmi því ráðningar skólastjóra hafa verið undantekning frá þeirri meginreglu að fagsvið borgarinnar sjái um ráðningu helstu stjórnenda undirstofnana. Ákvörðunin er einnig í samræmi við gildandi sveitarstjórnarlög sem gerir ráð fyrir því að sveitarstjórn ráði æðstu embættismenn sem síðan ráði aðra starfsmenn sveitarfélagsins, þar með talið skólastjóra.
Nýlega var aukin aðkoma skóla-/ og foreldraráða að ráðningarferli skólastjórnenda þannig að foreldrar koma að mótun hæfnisskilyrða áður en gengið er frá auglýsingu um störf leik- og grunnskólastjóra. Meirihlutinn er opinn fyrir frekari aðkomu foreldra að ferlinu en leggur áherslu á að ráðning skólastjóra byggist ávallt á vel skilgreindum hæfniskröfum, menntun og starfsreynslu og vönduðu ráðningarferli þar sem áhersla er lögð á samanburðarmat fagmanna á hæfi umsækjenda.
Það er mikilvægt að borgaryfirvöld bregðist við þeirri gagnrýni úttektarnefndarinnar að of mikill tími fagráða borgarinnar hafi farið í einstök framkvæmdamál á kostnað stefnumótunar og eftirlits sem er meginhlutverk ráðanna. Ákvörðun meirihluta skóla- og frístundaráðs gerir það og er í samræmi við þá stefnu hans að styðja við faglegt starf í leik- og grunnskólum borgarinnar.