„Ég hef verið að smíða langspil núna í nokkur ár. Ég er ekki menntaður hljóðfærasmiður en hef þó verið að fikra mig áfram og smíðað töluvert af þessu. Langspilið selst vel og það koma pantanir frá Íslendingum og svo talsvert frá útlöndum líka. Íslendingarnir eru flestir tónlistarmenn með áhuga á þjóðlagatónlist en útlendingarnir eru margir hverjir safnarar.“
Jón smíðaði fyrst langspil 2003 eftir pöntun frá eistneskum tónlistarkennara sem var þá starfandi á Þingeyri. „Ég smíðaði fyrir hann en var kannski ekkert sérstaklega ánægður með það hljóðfæri svo ég hélt áfram að smíða. Smíðaði fleiri og fleiri langspil og þetta þróaðist töluvert. Ólafur Arnalds fékk svo tónlistarverðlaun frá STEFi og fékk langspil frá mér í verðlaun og það vakti mikinn áhuga.“

„Það er minna vitað um íslensku fiðluna en hún var afar einfalt hljóðfæri og kannski er það ástæðan fyrir því að áhuginn er minni. Langspilið er líka þróaðri útgáfa og það er auðvelt að ná tökum á langspilinu fyrir þá sem hafa eitthvað örlítið fengist við tónlist. Langspilið er látið liggja á borði eða hnjám og svo er spilað með boga. Það er spilaður einn undirtónn og svo er melódíustrengur.
En það má geta þess að þetta hljóðfæri var gríðarlega vinsælt á íslenskum heimilum um miðja nítjándu öld og þau hljóðfæri voru mörg hver heimasmíðuð. En svo hef ég líka náð góðum tökum á að smíða fleiri hljóðfæri og það má kynna sér það nánar á heimasíðunni minni langspil.weebly.com og þar er líka hægt að leggja inn pantanir.“
