Rihanna sögulega eftirsótt 3. júlí 2015 12:00 Hér er sannarlega ekki um neinn aukvisa að ræða.
Poppprinsessan Rihanna setti á dögunum sögulegt met, en hún hefur fyrst allra tónlistarmanna náð að brjóta hundrað milljóna sölumúrinn þegar kemur að stafrænni verslun með plötur hennar í Bandaríkjunum. Hér er verið að tala um niðurhal og spiluð lög á alnetinu. The Recording Industry Association of America heldur utan um þessar upplýsingar og sendi frá sér tilkynningu þess efnis að hér væri stórmerkilegum áfanga náð. Má segja að Rihanna, sem er tuttugu og sjö ára, hafi verið meira og minna í eldlínunni undanfarinn áratug, en hún hóf innreið sína í skemmtanabransann árið 2005 og hefur líklega sjaldan verið heitari. Til að setja merkilegheitin í samhengi má benda á að Taylor Swift er næst á eftir henni með áttatíu og átta milljón spilanir og Katy Perry er með sjötíu og níu milljónir. Var það nýjasti smellurinn, B***h Better Have My Money, sem kom Rihönnu yfir hjallann en lagið hefur slegið rækilega í gegn, líkt og flest það sem kemur frá söngkonunni.
Tónlist Mest lesið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira