Hún Bríet var ástfangin stelpa og átti fullt af margvíslegum áhugamálum, vildi vera í vinnu eins og aðrir og þurfti að díla við ýmis sammannleg vandamál, auk þess að berjast fyrir réttlátara þjóðfélagi,“ segir Anna Kolfinna Kuran um dansverk sitt um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur.
Anna Kolfinna er á fullu að æfa með þeim Gígju Jónsdóttur, Lovísu Ósk Gunnarsdóttur og Esther Talíu Casey.
„Vinnuferlið hefur verið ljúft og samstarfskonur mínar eru opnar og duglegar að koma með hugmyndir, það er ég þakklát fyrir,“ segir Anna Kolfinna sem er langalangömmubarn Bríetar. Hún segir ekkert einfalt að gera dansverk um svo þjóðþekkta persónu sem langalangamma hennar var.
„Fyrir mér var Bríet mögnuð kona og miklu meira fyrirmynd okkar Íslendinga en bara formóðir mín, kannski hefur verkið samt meira persónulegt gildi fyrir mig vegna skyldleikans.
Svo finnst mér gaman að taka þátt í þessum fögnuði sem 100 ára kosningaafmæli kvenna er og hugmyndin að dansverkinu spratt fram út frá því,“ segir hún.
Tekur líka fram að auk þeirra fjögurra sem verða á sviðinu komi tvær aðrar konur að verkinu, Eva Signý Berger sem hanni búninga og Vala Gestsdóttir, höfundur tónlistar.

Hún kveðst hafa verið meðhöfundur dansverka áður en Bríet sé fyrsta verkið sem hún er ein titluð höfundur að og stjórnandi, ásamt því að dansa.
Frumsýning á Bríeti verður í Smiðjunni þann 28. ágúst en í kjölfarið flyst sýningin í Tjarnarbíó.