Tónlist

Hrært saman í góða kássu

,,Ég nýt þess mikið að vera leiðangursstjórinn inni í Serengeti-garðinum þar sem allir taka þátt og merkja sín svæði,“ segir President Bongo um gerð nýju plötunnar Serengeti.
,,Ég nýt þess mikið að vera leiðangursstjórinn inni í Serengeti-garðinum þar sem allir taka þátt og merkja sín svæði,“ segir President Bongo um gerð nýju plötunnar Serengeti. MYND/ARI MAGG
Eftir 20 ára farsælan og viðburðaríkan feril með hljómsveitinni GusGus ákvað Stephan Stephensen, öðru nafni President Bongo, að segja skilið við félaga sína og hefja sólóferil ásamt því að einbeita sér að öðrum verkefnum.

Fyrir nokkrum vikum kom svo frumburðurinn út, konseptplatan Serengeti. Á henni leggur fjöldi ólíkra hjálparmanna, eða tilfinningasmiða eins og hann kallar þá, honum lið við að skapa verk sem lýsa á lífinu í þjóðgarðinum Ser­engeti sem er á landamærum Tansaníu og Kenýa.

Hægt er að hlusta á plötuna í heild á Soundcloud og Spotify auk þess sem horfa má á magnað myndband við lagið Greco á YouTube-rásinni President Bongo.

Hann segir að Serengeti hefði auðveldlega getað verið nokkuð öflug hryggjarsúla í GusGus-verki og skemmtileg viðbót í flóru sveitarinnar með ýmsum viðbótum, t.d. söng Daníels Ágústs og Högna. „Hlutirnir þróuðust hins vegar þannig að tilraunamennska var ekki fremsti fuglinn í GusGus-oddafluginu og því ákvað ég að skera mig úr flokknum og leita eigin leiða. Taka Gæsavatnaleiðina til Egilsstaða. Hér kennir ýmissa grasa og erfitt er að lýsa þeim nákvæmlega. Best er að loka augunum og hlusta og láta hugann reika.“

Til í tuskið

Aðspurður nánar út í brotthvarf sitt úr GusGus segir Bongo: „Hvernig útskýrir maður af hverju samband endar? Dó ástin? Þagnaði hláturinn? Hvarf spennan? Hvar eru börnin? Braustu handklæðin vitlaust saman og í ofanálag settir aldrei í vél? Á hljómsveitarmáli er þetta víst nefnt „listrænn ágreiningur“ og þá gerir maður auðvitað sína eigin plötu þar sem maður ræður því sjálfur hvernig handklæðin eru brotin saman. Maður áttar sig á hvað maður vill ekki gera og fer hina leiðina og lætur hjartað ráða för.“

Hann segir það hafa verið frábæra tilfinningu að vera eigin herra eftir öll þessi ár. „Ég nýt þess mikið að vera leiðangursstjórinn inni í Serengeti-garðinum þar sem allir taka þátt og merkja sín svæði. Ég lít þó á þessa plötu sem samstarf og líður eiginlega eins og leikstjóra, frekar en sóló-artista. Þannig er ég til í tuskið en á endanum er það ég sem er skrifaður fyrir öllu ruglinu og tek alla ábyrgð.“

„Hér kennir ýmissa grasa og erfitt er að lýsa þeim nákvæmlega. Best er að loka augunum og hlusta og láta hugann reika,“ segir President Bongo um fyrstu sólóplötu sína Serengeti sem kom út nýlega.MYND/SNORRI BROS
Fengið góðar viðtökur

Hann segir vinnuferlið hafa verið bæði skemmtilegt og gefandi, heima og að heiman. „Ég sendi og fékk senda frá þessum tilfinningasmiðum músík sem ég útsetti síðan og raðaði saman í það sem varð á endanum efnið í allar þessar vindáttir sem fjallað er um á plötunni. Tilfinningasmiðirnir eru af ýmsum toga; innlendir og erlendir tónlistarmenn, leikstjórar og hönnuðir.“

Serengeti hefur fengið góðar viðtökur og segist hann hafa á tilfinningunni að fólk skilji að verkið fjallar um annað og meira en þriggja mínútna útgáfu af poppi. „Verkið fjallar um samruna líkama og sálar, frumþarfir og trans. Ástina, lífið og láta ímyndanaraflið hræra þessu öllu saman í góða kássu. Hingað til hafa gagnrýnendur gefið sér tíma til að hlusta og skilja konseptið til fullnustu og það yljar manni um hjartaræturnar því að baki liggur mikil vinna.“

Mörg járn í eldinum

Margt annað spennandi er á döfinni hjá Bongo í ár. „Ég, Dj Margeir og Ásdís María erum harðákveðin í að byrja fyrir alvöru að vinna fyrstu Gluteus Maximus-plötuna og sú vinna hófst í vikunni. Svo er ég með tvær ljósmyndabækur í smíðum og vonandi enn eina ljósmyndasýninguna með haustinu. Ég er sífellt að gera endurhljóðblandanir og er nýbúinn að skila af mér mixi fyrir Wild Style Lion. Um er að ræða rokk-prójekt Khan of Finland þar sem Kim Gordon kemur við sögu. Þessa dagana er ég að leggja lokahönd á mix fyrir Fufanu. Nokkur járn í eldinum sem ættu að ylja manni fram á sumar."

Nánari upplýsingar má finna á www.radiobongo.net

starri@365.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×