Tónlist

Jay Z: Ég geri Harry Styles að stærstu stjörnu heimsins á innan við ári

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Rapparinn og frumkvöðullinn Jay Z vill starfa með One Direction stjörnunni Harry Styles
Rapparinn og frumkvöðullinn Jay Z vill starfa með One Direction stjörnunni Harry Styles Vísir/Getty
Rapparinn, plötuframleiðandinn og frumkvöðullinn Jay Z telur sig geta hjálpað One Direction stjörnunni Harry Styles og segir að með sinni hjálp verði Styles orðinn að stærstu stjörnu tónlistarheimsins á innan við ári.

„Harry þarf enga hjálp við kynningu, allir í heiminum vita hver hann er,“ sagði Jay Z. „Hann mun hinsvegar þurfa hjálp við að færa sig úr því að vera einn meðlimur í hljómsveitir yfir í að standa á eigin fótum.“

Það er þar sem Jay Z telur að hann geti komið Styles til hjálpar en rapparinn vinsæli hefur haft ekki minni stjörnur en Rihanna og Kanye West undir sínum verndarvæng. Hann ætti því að vita hvað hann syngur.

„Ég get komið honum í samstarf við bestu tónlistarmennina, bestu pródúserana og með mér yrði hann orðin stærsta stjarna heimsins á innan við ári.“

Styles er enn meðlimir í strákasveitinni One Direction sem hefur farið sigurför um heiminn frá því að hún kom fyrst fram í breska X-Factor árið 2010. Síðan þá hefur hljómsveitin selt yfir 50 milljónir platna og komið fram um allan heim.

Svo virðist sem að Harry Styles hafi áhuga á því að standa á eigin fótum en hann hefur samið fjögur ný lög sem hann einn er skráður fyrir og Jay Z virðist vera æstur í því að vinna með honum, spurningin er því hvort að Styles vilji vinna með Jay Z?


Tengdar fréttir

One Direction halda hver í sína átt

Það ætlaði allt um koll að keyra þegar The Sun sagði frá því að One Direction ætluðu að hætta. Þeir hafa þó fullvissað aðdáendur sína um að þeir ætli sér aðeins að taka árs frí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×