Tónlist

Platan tengir okkur feðgana saman

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Rúnar heldur tónleika á Café Rosenberg á morgun ásamt hljómsveitinni.
Rúnar heldur tónleika á Café Rosenberg á morgun ásamt hljómsveitinni. Vísir/Ernir
„Að baki útgáfu plötunnar Ólundardýrs liggur sérstakt ferli. Það hófst þegar ég átti stórafmæli, 12. janúar 2015, þá kom fyrsta lagið út á vefnum.  Í kjölfarið kom út eitt lag á mánuði á vefnum þar til 7. nóvember að afraksturinn í heild kom út á plötu en þann dag hefði faðir minn, Þórir Sæmundsson, fyrrverandi sveitarstjóri, kaupfélagsstjóri og skákmaður, orðið áttræður. Þannig tengi ég okkur feðga saman og heiðra minningu pabba,“ segir fyrrum Grafíkspilarinn Rúnar Þórisson, sem heldur útgáfutónleika á Café Rosenberg annað kvöld klukkan 22.

Rúnar kveðst búa svo vel að dætur hans, Lára og Margrét, sem starfa sjálfstætt sem tónlistarmenn, spili og raddi með honum á plötunni. Makar þeirra, Arnar Þór Gíslason og Birkir Rafn Gíslason, eru líka í hljómsveitinni. „Þannig að allir í sveitinni eru í fjölskyldunni nema Guðni Finnsson bassaleikari sem er fjölskylduvinur.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×