Gerhard Berger, fyrrum Formúlu 1 ökumaður segir að síðasta tímabil hafi eitt og sér breytt ásýnd tveggja bestu ökumannanna í Formúlu 1.
Fernando Alonso var af mörgum talinn sá besti sem ók í Formúlu 1 fyrir síðasta tímabil. Berger segir þetta hafa breyst á tímabilinu.
Sebastian Vettel kom til Ferrari frá Red Bull þar sem hann þurfti ítrekað að sætta sig við að lúta í lægra haldi fyrir liðsfélaga sínum, Daniel Ricciardo. Vettel reif sig upp úr lægðinni og snéri til baka öflugari en áður að mati Berger.
„Fyrir þremur árum sögðum við öll að Alonso væri bestur. Í dag myndi ég ekki segja það,“ sagði Berger í samtali við Auto Motur und Sport.
„Honum hefur einfaldlega ekki tekist að sanna það og að endingu gleymir maður hversu góður hann var einu sinni,“ bætti Berger við.
„Vettel svipar mikið til Michael (Schumacher) hvað varðar vinnubrögð og það hversu vel hann passar inn í Ferrari liðið. Ég upplifði það aðeins sjálfur á mínum tíma hjá Ferrari. Ég hafði þó ekki nærri eins mikil áhrif og (Niki) Lauda, Schumacher eða Vettel,“ hélt Berger áfram.
„Þegar Ferrari fær leiðtoga sem getur samsvarað sig ítalska andrúmsloftinu í liðinu getur liðinu gengið gríðarlega vel. Alonso var ekki rangur maður fyrir Ferrari, hann var bara ekki sá rétti heldur. Hann hefur bara önnur vinnubrögð,“ sagði Berger að lokum.
Berger: Alonso er ekki lengur bestur

Tengdar fréttir

Vettel fljótastur á seinni prófunardegi
Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur á seinni degi regndekkjaprófana Pirelli í Frakklandi.

Ricciardo fljótastur í dekkjaprófun
Daniel Ricciardo var fljótastur á Red Bull á fyrsta degi prófana hjá Pirelli. Regndekk voru prófuð á Paul Ricard brautinni í Frakklandi í dag.

McLaren á tvær sekúndur inni
Ökumenn McLaren liðsins, Fernando Alonso og Jenson Button telja tveggja sekúndna framfarir afar mögulegar í vetur. Þeir telja mögulegt að þeir muni berjast um verðlaunasæti á næsta ári.

Magnussen tekur sæti Maldonado hjá Renault
Kevin Magnussen, fyrrum ökumaður McLaren liðsins í Formúlu 1 mun samkvæmt heimildum Autosport taka sæti Pastor Maldonado hjá Renault liðinu í Formúlu 1.

Red Bull og Ferrari með auga á McLaren
McLaren gæti ógnað Red Bull á næsta tímabili ef marka má helsta hönnunargúrúið í Formúlu 1, Adrian Newey. Ferrari gæti líka fundið fyrir McLaren samkvæmt liðsstjóra Ferrari.