Furðuleg frétt Ívar Halldórsson skrifar 25. janúar 2016 15:28 „Það er fyrirsjáanlegt að lesendur hati ísraelsku þjóðina ef fréttamiðlar mála í hvívetna skrattann á vegg hennar.“ Að halda mikilvægum staðreyndum frá lesendum í fréttum getur valdið skaðlegum misskilningi. Að sleppa lykilatriðum úr frétt, getur verið villandi og getur gefið eitthvað í skyn sem kann að afvegaleiða lesandann. Afstaða lesandans til þeirra sem fjallað er um í fréttinni stendur alltaf og fellur með þeim upplýsingum sem gefnar eru hverju sinni, og hvernig þær eru matreiddar. Þarna er ábyrgð fréttamannsins mikil. Furðuleg fannst mér frétt sem birtist á vefmiðli RÚV um daginn. Yfirskrift fréttarinnar var „Rústa húsi í refsingarskyni". Beindist fingur fyrirsagnarinnar augljóslega að meintri grimmd ísraelsku stjórnarinnar, er hún ákvað að jafna hús palestínsks hryðjuverkamanns við jörðu í kjölfar þess að „ungmennið“ var sakað um „að stinga konu úr röðum gyðinga til bana“, eins og í fréttinni segir orðrétt. Mér fannst orðalagið „úr röðum gyðinga“ reyndar athyglisvert. Það er eins og að lesandinn eigi að sjá konuna sem meðlim einhverrar herdeildar, öfgahóps, fylkingar eða þaðan af verra. En leyfum RÚV að njóta vafans hvað orðalagið varðar í þessu tilviki og reynum að láta þetta einkennilega orðaval liggja á milli hluta - alla vega í bili. Sú mikilvæga staðreynd, sem RÚV fannst ekki vert að nefna, er að þetta "ungmenni" var ekki aðeins gefið að sök að hafa drepið konu eins og fréttin hermir, heldur er staðfest að þessi hryðjuverkamaður framdi óhugnanlegan og hrottalegan glæp. Hér eru upplýsingar frá erlendum fréttamiðlum sem umturna frétt RÚV, setja atburði í rétt samhengi og veita upplýsingar sem í frétt RÚV var haldið frá lesendum: Dafna Meir var að mála hurðina sína. Hún var 6 barna móðir - tvö barna hennar kjörbörn. Hún starfaði sem hjúkrunarkona á spítala, þar sem hún hjúkraði bæði gyðingum og aröbum. Palestínskur hryðjuverkamaður kom aftan að henni þar sem hún var að mála útidyrnar hjá sér og stakk hana í bakið fyrir framan þrjú barna hennar. Því næst stakk hann hnífnum svo fast í höfuð konunnar að hann náði með engu móti að losa hann og varð að flýja vettvanginn án hans. Ekkert er sagt um konuna sem hryðjuverkamaðurinn myrti í frétt RÚV, annað en að hún var gyðingur. Fréttin minnist heldur ekki á að faðir „ungmennisins“ fór í viðtal hjá palestínskum miðli í kjölfar hryðjuverksins, þar sem hann lýsti því yfir hversu stoltur hann var af syni sínum fyrir að hafa myrt gyðing. Ekki eru lesendur fréttarinnar upplýstir um að fjölskyldur hryðjuverkamanna hagnast á hryðjuverkum sem framin eru í Ísrael, gegn gyðingum - en fjölskylda hryðjuverkamannsins fær greiddar bætur frá palestínskum yfirvöldum fyrir að berjast fyrir málsstað Palestínu. Þetta er venjan þar, alveg eins og að í Ísrael er venjan að jafna hús hryðjuverkamann við jörðu. Þetta er dómur sem dómstólar úrskurða - refsing sem vera á öðrum hryðjuverkamönnum víti til varnaðar. Þetta eru palestínskir hryðjuverkamenn meðvitaðir um. Í tölvusamskiptum mínum við fréttastofu RÚV fannst mér ég þó lítið annað fá en loðin svör. Mér var bent á að texti fréttarinnar hefði verið knappur og fréttir RÚV mislangar. Væntanlega var þá átt við að ekki hafi verið pláss fyrir lykilatriði eða samúð með fórnarlambinu. Þá var fullyrt að ekkert hafi verið efnislega rangt í fréttinni og því engin ástæða til þess að fréttastofa sæi sig um hönd. Þetta svar þeirra er alveg efnislega rétt. Það voru engin ósannindi í fréttinni. Engu logið - en ýmsu sleppt. Allt var efnislega satt, þótt sannleikurinn hafi verið af mjög skornum skammti og orðalagið villandi. „Maður á besta aldri lést á heimili sínu“, gæti verið knappur fréttatexti í stuttri frétt. Sú staðreynd að innbrotsþjófur hafi í raun drepið virtan þingmann með vélbyssu eftir að hafa nauðgað konu hans, gerir fyrri setningu ekki efnislega ranga. Hún gefur hins vegar allt annað í skyn en það sem í raun átti sér stað. Það er réttur fjöldi sannra orða og fagmannleg samsetning þeirra sem eru fjöregg hverrar fréttar. Knappur texti á engan veginn að firra fréttamann þeirri ábyrgð, að tryggja að lesandinn sé með rétta og sanna mynd af atburðum að fréttalestri loknum. Þegar fréttamiðill ákveður að segja aðeins hálfan sannleikann velti ég fyrir mér hvort svörin sem ég fékk frá ritstjórn við athugasemdum mínum hafi þá einnig aðeins verið hálfur sannleikurinn. Þegar fréttamiðill ákveður að mála hryðjuverkamanninn í frétt sinni sem hið sanna fórnarlamb; en ekki ónefnd börnin sem sáu með eigin augum móður sína myrta með hnífi fyrir það eitt að vera gyðingur, veltir maður því óneitanlega fyrir sér hvað liggi að baki slíkri ákvörðun. Með aðeins hálfan sannleikann, reynir maður bara eftir bestu getu, eins og lesendur umræddra fréttar, að fylla í eyðurnar. Ég veit að fólk spyr sig hvort þarna sé viljandi verið að ala á andúð gegn ísraelsku þjóðinni og gyðingum. Það er fyrirsjáanlegt að lesendur hati ísraelsku þjóðina ef fréttamiðlar mála í hvívetna skrattann á vegg hennar. Það er ekkert skrýtið að hatur gagnvart Ísrael brjótist oft út í umræðum á samskiptamiðlum hérlendis í dag. Fólk er einfaldlega illa upplýst af fréttamiðlum og er umræddur fréttaflutningur RÚV skólabókardæmi um villandi frásögn. Ég þekki sjálfur marga sem lásu þessa frétt og skilja t.d. ekki af hverju RÚV virðist í fréttinni forðast öll orð sem sýnt gætu samúð með konu „úr röðum gyðinga“. Sumir þessara lesenda eru gyðingar; góðir vinir mínir sem finnst vegið að þeirra persónu, kynþætti og uppruna með frétt sem virðist frekar standa með morðingjanum en fórnarlambinu. En hvað knýr fréttaveitu til að hætta á það að fólk álíti hana bera fordóma gegn ákveðnum kynstofni? Af hverju ekki að sýna sömu varkárni í fréttum af gyðingum; sem hafa þolað endalausar ofsóknir fyrir það eitt að vera gyðingar, eins og í fréttum af öðrum hópum sem orðið hafa fyrir miklu aðkasti á grundvelli þjóðernis, litarháttar eða kynhneigðar? RÚV skartar frábærum fréttamönnum sem eru vel starfi sínu vaxnir. Þetta er frábært fólk og kærleiksríkt upp til hópa. Það er ég sannfærður um. Að hætta ímynd sinni með svona óábyrgum hætti má líkja við jeppaeiganda sem arkar út á hálf-frosið stöðuvatn í blúndubuxum og á háum hælum, þegar hann getur skynsamlega til fara, hæglega keyrt vel búnum jeppa sínum, örugglega kringum vatnið. Þetta er því miður ekki í fyrsta skiptið sem fréttir um skipulögð hryðjuverk í Ísrael vekja furðu mína og annara. Mér hefur þá verið tjáð af viðurkenndu fagfólki í fjölmiðlageiranum hérlendis að fréttir frá óáreiðanlegum fréttaveitum erlendis eru oft settar í íslenska fréttamiðla án gagnrýni og án þess að sannleiksgildi þeirra sé staðfest. Þetta er víst oft raunin með fréttir frá Mið-Austurlöndum. Ég vona þó innilega að fagmennskan verði í fyrirrúmi í framtíðinni hjá RÚV allra landsmanna, sem og hjá öllum þeim fréttamiðlum hérlendis sem gangast við þeirri miklu ábyrgð að segja landsmönnum fréttir - ómengaðar og faglegar frásagnir sem ávallt eru ósparar á sannleikann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ívar Halldórsson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar