Tónlist

Deila um lógó sem þeir virðast hafa nappað sjálfir

Jakob Bjarnar skrifar
Á myndinni má hlljómsveitina meðan allt lék í lyndi, merki hátíðarinnar og svo fyrstu plötu Sólstafa. Vart fer á milli mála að lógóið er það hið sama.
Á myndinni má hlljómsveitina meðan allt lék í lyndi, merki hátíðarinnar og svo fyrstu plötu Sólstafa. Vart fer á milli mála að lógóið er það hið sama.
Guðmundur Óli Pálmason, fyrrum trymbill hljómsveitarinnar Sólstafa, hefur sent frá sér opinbera tilkynningu þar sem hann gerir heyrinkunnugt, fyrir hönd Svalbard Music Grooup ehf., að búið sé að höfða mál á hendur Aðalbirni Tryggvasyni, söngvara Sólstafa, þar sem tekist verður á um helstu eignir hljómsveitarinnar Sólstafa, sem eru vörumerkið og svo öll helstu viðskiptasambönd.

Aðalbjörn er sakaður um að hafa „illegally seizing control over and ownership of the company’s main asset, the trademark Sólstafir and the band’s business, and for hollowing the company out from the inside.“

Í tilkynningu Guðmundar kemur fram að málið hafi verið þingfest við héraðsdóm Reykjavíkur 12. þessa mánaðar.

Einn hængur er þar á, sem kann að flækja málið sem þó er flókið fyrir, að þarna virðist sem meðal annars sé barist um vörumerki hljómsveitarinnar sem hljómsveitin nappaði sjálf í upphafi síns ferils.

Halla Helgadóttir er framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvarinnar og henni kemur þetta mjög spánskt fyrir sjónir. „Þetta er sama nafn, sama leturgerðin og það fer ekkert á milli mála. Um hvaða eign eru þeir eiginlega að deila,“ segir Halla forviða.

Upphaflega lógó listahátíðar

Halla hefur verið að ræða þetta sérkennilega mál við fyrrum félaga sína á auglýsingastofunni Grafít, hvar hún var eigandi. Forsaga málsins er sem sagt sú að árið 1995 barst verkefni þar inná borð frá menntamálaráðuneytinu, hvar Hanna Birna Kristjánsdóttir var helsti tengiliður; þá um að hanna útlit á norrænni listahátíð. Ólafur G. Einarsson þá ráðherra opnaði hátíðina 11. febrúar 1995 og stóð hún til 25. mars. Halla segir að Grafít hafi hannað útlit hátíðarinnar, þar með talið lógó eða vörumerki, en hátíðin hlaut nafnið Sólstafir.

„Sko, maður tekur þessu nú ekkert alvarlega en Magnús Arason, grafískur hönnuður, vann þetta lógó á Grafít árið 1995.“

Halla segir málið bæði skondið og svo alvarlegt öðrum þræði: Tragíkómískt.
Gömlu félagarnir í Grafít rifjuðu það upp að þegar þau ráku augu í þetta fyrir tilviljun, fyrir mörgum árum, þá hafi þeim fyrst og fremst fundið þetta fyndið, þau áttu ekki von á því að þessi hljómsveit yrði eins langlíf og raun bar vitni; en Sólstafir eiga stóran aðdáendahóp, meðal annars utan landsteina. En, Halla segir sérkennilega þá stöðu sem nú er upp komin, þegar menn eru farnir að berjast um hönnun í dómssal sem þeir ekki einu sinni teiknuðu sjálfir; að verja einkarétt á myndmerki og hönnun sem þeir eiga ekki. Að skila inn hönnun einhvers annars, myndmerki, og skrá einkarétt sé auðvitað ekki rétt.

Ljósritað og sjúskað í tímans rás

Halla, og aðrir sérfræðingar á sviði grafískrar hönnunar sem Vísir hefur borið málið undir, segja ekki fara á milli mála að þarna er um nákvæmlega sama merkið að ræða. Leturgerðin og uppsetningin er alveg sú sama, til dæmis á fyrstu plötu hljómsveitarinnar, en svo hafi þetta verið ljósritað og sjúskað og grófara í tímans rás. „Þegar þetta var hannað var tölvuvæðingin ekki orðin eins öflug og nú er,“ segir Halla en hana minnir að letrið hafi á sínum tíma verið fengið úr leturgerðarbók.

Þó þetta sé ekki mál sem Halla lítur alvarlegum augum, og sé kannski skondið öðrum þræði þá varðar þetta umfangsmikla hagsmuni sem snúa að hönnun og höfundarrétti. Sem vert er að vekja fólk til vitundar um.


Tengdar fréttir

Stærsta ár Sólstafa

Sveitin er farin í tónleikaferðalag um Evrópu en trommuleikari sveitarinnar er ekki með. Nýjasta platan fékk mikið lof gagnrýnenda og annasamt ár er í vændum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×