Citroën SpaceTourer Hyphen Finnur Thorlacius skrifar 5. febrúar 2016 15:45 Citroën SpaceTourer Hyphen. Automobilemag
Tími strumpastrætóanna er ekki alveg liðinn þó svo sala þeirra hafa farið verulega dvínandi á síðustu árum. Bandaríkjamenn virðast vera orðnir mjög fráhverfir slíkum bílum (Vans), en evrópskir kaupendur eru ennþá móttækilegir fyrir þeim. Til að gera svona bíla, sem stundum eru einnig kallaðir fjölnotabílar, meira spennandi hefur Citroën fengið fyrirtækið Hyphen Hyphen með sér í lið og útfært þennan SpaceTourer framleiðslubíl sinn í skemmtilegum og litaglöðum stíl. Þessa útfærslu hans ætlar Citroën að sýna á bílasýningunni í Genf í næsta mánuði. SpaceTourer leysir af hólmi Combi bíla Citroën. Þessi SpaceTourer Hyphen er með 1,6 lítra dísilvél sem fæst frá 95 til 178 hestöflum og er beinskiptur með 6 gírum og eyðir afar litlu. Hann mun fást í þremur lengdum og 5 til 9 manna, eftir útfærslum. Þessi Hyphen gerð bílsins er hærri frá vegi, er fjórhjóladrifinn og á stærri og grófari dekkjum sem hæfir getu hans. Hann er bæði litaglaður að innan sem utan eins og myndunum má sjá. Þessi bíll virðist afar skemmtileg græja en guð hvað það væri skemmtilegt að smella í hann 707 hestafl Hellcat vélinni frá Chrysler. Væri þá þarna kominn einn heppilegasti partýbíll sem komast mætti yfir.Ekki vantar litagleðina hér.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent