Grótta fer vel af stað eftir vetrarfríið í Olís-deild karla í handbolta en í kvöld unnu Seltirningar góðan þriggja marka sigur, 28-25, á Fram á heimavelli.
Staðan í hálfleik var jöfn, 12-12, en frábær kafli hjá heimamönnum um miðbik seinni hálfleiks gerði útslagið. Grótta breytti þá stöðunni úr 19-17 í 24-19 og það bil náðu gestirnir ekki að brúa.
Með sigrinum fór Grótta upp fyrir Akureyri í 6. sæti deildarinnar. Fram er enn í 3. sætinu en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu sex deildarleikjum sínum.
Fyrri hálfleikurinn var ágætlega spilaður af beggja hálfu og það var ekki að sjá að fríið langa sæti í mönnum.
Grótta skoraði fyrsta markið en þá komu fjögur Fram-mörk gegn einu Seltirninga og staðan orðin 2-5. Kristófer Fannar Guðmundsson byrjaði vel í marki Fram og lagði grunninn að þessari góðu byrjun liðsins.
Grótta svaraði með 5-1 kafla og komst yfir, 7-6, þegar Guðni Ingvarsson skoraði sitt eina mark í fyrri hálfleiknum.
Eftir þennan slæma kafla herti Fram-liðið vörnina og það skilaði auðveldum hraðaupphlaupsmörkum. Gestirnir skoruðu fjögur mörk í röð og náðu þriggja marka forystu, 7-10.
En líkt og fyrr í leiknum entist forystan ekki lengi. Grótta skoraði þrjú mörk í röð og jafnaði metin í 10-10. Liðin skoruðu bæði tvö mörk til viðbótar í fyrri hálfleik og þegar þau gengu til búningsherbergja var staðan jöfn, 12-12.
Heimamenn komu mjög vel stemmdir til leiks í seinni hálfleik og náðu fljótlega þriggja marka forystu, 17-14. Vörn Gróttu var öflug lengst af í seinni hálfleik en það sama verður ekki sagt um Fram-vörnina sem var óvenju slök enda fékk liðið á sig 16 mörk í seinni hálfleiknum sem gerist ekki á þeim bænum.
Tveimur til þremur mörkum munaði á liðunum næstu mínúturnar. En í stöðunni 19-17 skiptu heimamenn um gír, skoruðu fimm mörk gegn tveimur og komust fimm mörkum yfir, 24-19, þegar Daði Laxdal Gautason skoraði sitt fimmta mark með frábæru skoti í slá og inn.
En Gróttumenn hleyptu gestunum inn í leikinn með barnalegum mistökum í sókninni auk þess sem tvær brottvísanir á skömmum kafla fóru illa með liðið.
Framarar nýttu sér þessi vandræði heimamanna, skoruðu fjögur mörk í röð og minnkuðu muninn í aðeins eitt mark, 24-23. En lengra komust gestirnir ekki. Grótta skoraði þrjú af næstu fjórum mörkum leiksins og náði undirtökunum að nýju.
Á endanum munaði þremur mörkum á liðunum. Lokatölur 28-25, Gróttu í vil.
Finnur Ingi Stefánsson var markahæstur í liði Seltirninga með sjö mörk en Daði Laxdal kom næstur með sex. Þráinn Orri Jónsson átti einnig prýðisgóðan leik; nýtti færin sín vel og var sterkur í vörninni. Hann skilaði fjórum mörkum líkt og Júlíus Þórir Stefánsson og Viggó Kristjánsson sem var einnig duglegur að mata félaga sína.
Þá stóð Lárus Helgi Ólafsson fyrir sínu í markinu og varði 17 skot (41%), þar af fimm frá bróður sínum í liði Fram, Þorgrími Smára.
Garðar B. Sigurjónsson nýtti sínar mínútur vel í liði Fram og skoraði sex mörk úr jafnmörgum skotum. Stefán Darri Þórsson átti sömuleiðis fínan leik með fimm mörk. Miklu munaði um að skyttur liðsins náðu sér ekki á strik en Þorgrímur Smári og Ólafur Ægir Ólafsson skoruðu aðeins fimm mörk úr samtals 14 skotum.
Lárus Helgi: Var með hann í vasanum
Lárus Helgi Ólafsson, markvörður Gróttu, var kampakátur í leikslok eftir góðan sigur Seltirninga á Fram í kvöld.
"Við erum gríðarlega ánægðir með þessa byrjun og erum búnir að leggja ótrúlega mikið inn í bankann hjá okkur," sagði Lárus og bætti því við að Gróttumenn hafi nýtt vetrarfríið vel til að æfa.
Staðan var jöfn í hálfleik en í seinni hálfleiknum hafði Grótta undirtökin ef frá er talinn nokkurra mínútna kafli þar sem Fram skoraði fjögur mörk í röð.
"Þetta var jafnt í fyrri hálfleik, þeir jafnvel ívið sterkari. Við vorum kannski heppnir að ná að jafna fyrir hálfleik. Við gerðum mistök í sókninni sem okkur fannst við geta lagað," sagði Lárus.
"Okkar leikplan í seinni hálfleik gekk algjörlega upp. Þetta gekk í raun allt upp nema á þessum kafla þar sem við erum mikið færri og þeir minnka muninn niður í eitt mark. Þá vorum við við það að missa "kúlið". En við komum sterkir til baka."
Lárus átti fínan leik í kvöld og varði 17 skot, þar af fimm frá bróður sínum í Fram-liðinu, Þorgrími Smára, sem hann var í raun með í vasanum.
"Það er annað hvort þannig eða hann er með mig í vasanum," sagði Lárus og hló.
"Við hugsum nánast eins og þetta er annað hvort eða. Í dag datt þetta mín megin en síðast var hann með mig."
Guðlaugur: Þeir leystu vörnina okkar vel
Guðlaugur Arnarsson, þjálfari Fram, kvaðst nokkuð sáttur með fyrri hálfleikinn hjá sínum mönnum í tapinu fyrir Gróttu í kvöld.
"Mér fannst við kasta forskotinu of auðveldlega frá okkur í fyrri hálfleik," sagði Guðlaugur eftir leik en staðan í hálfleik var jöfn, 12-12.
"Við komumst þremur mörkum yfir en við spiluðum ekki nógu vel úr þeirri stöðu og hleyptum þeim inn í leikinn. Ég er ósáttur með það en sáttur með margt í fyrri hálfleik, vörnin var á köflum fín en við vorum klaufar í sókninni."
Varnarleikur Fram var hins vegar langt frá því að vera góður í seinni hálfleik þar sem liðið fékk á sig 16 mörk.
"Við komum almennt ekki nógu vel inn í leikinn í seinni hálfleik. Ég þarf að taka það til mín, hvernig ég talaði við strákana í hálfleik," sagði Guðlaugur sem segir að Grótta hafi leyst varnarleik Fram vel í leiknum.
"Við höfum átt í vandræðum í vörninni gegn Gróttu í vetur og þeir hafa leyst varnarleik okkar vel."
Fram er aðeins búið að vinna einn af síðustu sex deildarleikjum sínum. En hvað þarf liðið að gera til að komast aftur á sigurbraut?
"Við þurfum bara að sinna vinnunni okkar, mæta ákveðnir til leiks og vinna leiki," sagði Guðlaugur að lokum.
