Tónlist

Sjóðandi heitt myndband frá Verzlingum

Stefán Árni Pálsson skrifar
12:00 hópurinn er gríðarlega vinsæll innan veggja skólans.
12:00 hópurinn er gríðarlega vinsæll innan veggja skólans. vísir
Hópurinn sem gengur undir nafninu 12:00 innan Verzlunarskóla Íslands hefur gefið út nýtt myndband og má svo sannarlega slá því föstu að það er sjóðandi heitt.

Um er að ræða tónlistarmyndband við lagið Take You There og fjallar textinn um ástarlotur fólks.

12:00 eru þættir sem hafa verið í gangi í Versló síðan árið 1996 þegar fyrsta 12:00-nefndin var stofnuð. Þeir hafa fyrst og fremst verið hugsaðir sem skemmti- og afþreyingarþættir fyrir Verslinga en þeir rata einnig alltaf á YouTube eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×