Tónlist

Bein útsending: Tónkvíslin í Reykjadal

Stefán Árni Pálsson skrifar
Söngkeppnin Tónkvíslin fer fram í kvöld en hún hefur verið haldin af Nemendafélagi Framhaldsskólans á Laugum allt frá árinu 2006. Keppnin verður í beinni útsendingu á Bravó og Vísi og hefst hún klukkan 19:30.

Þetta er í ellefta skipti sem keppnin er haldin en í fyrra var keppnin í fyrsta skipti í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Bravó og mun hún vera það líka í ár. Keppnin er haldin í íþróttahúsinu við Framhaldsskólann, í Reykjadal.

Keppninni er skipt upp í tvo flokka, annars vegar eru það keppendur úr Framhaldsskólanum og hins vegar keppendur úr grunnskólum næsta nágrennis, allt frá Vaðlaheiði austur að Vopnafirði. 8 grunnskólum er boðið að taka þátt en þetta árið taka nemendur úr Borgarhólsskóla, Stórutjarnaskóla, Þingeyjarskóla og Öxarfjarðarskóla þátt.

Þetta árið eru 16 keppnisatriði, 8 úr Framhaldsskólanum, 8 úr Grunnskólunum, ásamt einu atriði frá kennurunum sem fær að taka þátt í símkosningu. Dómnefnd velur 3 bestu atriðin úr hvorum flokki og áhorfendur velja svo vinsælasta atriðið úr hvorum flokki með símkosningu.

Í ár sitja Þorvaldur Bjarni, Stefán Jakobsson og Bylgja Steingrímsdóttir í dómnefnd og sérstakur gestur kvöldsins er enginn annar en Eyþór Ingi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×