Frestur til að sækja um hreindýr að renna út Karl Lúðvíksson skrifar 24. febrúar 2016 11:33
Mikil eftirspurn hefur verið eftir hreindýraleyfum síðustu ár og er svo komið að færri komast að en vilja sem er ekkert skrýtið þegar úrvalsbráð eins og hreindýr er annars vegar. Það er þó oft þannig að einhverjum leyfum er skilað inn aftur og þá er gengið á biðlistann og sum árin hefur gengið ansi langt á hann þó svo að hann klárist aldrei, ekki einu sinni nálægt því. Það er rétt að minna veiðimenn á að sækja um dýr áður en fresturinn rennur út og skoða þá vel á hvaða svæðum mestur umsóknarþungi verður á. Hér er tilkynningnin frá Umhverfisstofnun. Í dag, þann 23. febrúar hafa tæplega 2.200 sótt um hreindýraveiðleyfi. Kvótinn í ár er 1300 dýr, 452 tarfa og 848 kýr. Frestur til að sækja um hreindýraveiðileyfi er til og með 29. febrúar. Þetta er lengri frestur en hefur verið hingað til vegna breytinga sem gerðar voru á umsóknarvefnum. Til að sækja um hreindýraveiðileyfi þarf að fara inn á Þjónustugáttina-Mínar síður á heimasíðu Umhverfisstofnunar en til að komast inn á Þjónustugáttina-Mínar síður þarf að nota annaðhvort rafrænt skilríki eða Íslykil. Ef veiðimenn hafa hvorki rafrænt skilríki eða Íslykil er hægt að panta Íslykil hér og er þá smellt á hnappinn „Mig vantar íslykil“. Veiðimenn sem hafa netbanka geta fengið Íslykilinn sendan þangað og tekur það um 5-10 mínútur, annars er hægt að fá hann sendan í pósti á lögheimili en það tekur 4-6 virka daga að jafnaði. Íslykill er aðgangsorð sem gefið er út af Þjóðskrá Íslands. Í fyrsta sinn sem Íslykilinn er notaður þarf að breyta honum í tíu stafa aðgagnsorð sem er blanda af bóksstöfum, tölustöfum og táknum. Við minnum þá veiðimenn sem ætla að sækja um hreindýraveiðileyfi að hafa samband við Umhverfisstofnun í tíma ef þeir lenda í vandræðum við umsóknina eða frekari spurningar vakna. Það verður að gerast áður en umsóknarfrestur rennur út.
Mest lesið Vikuveiðin í Veiðivötnum 1.906 fiskar Veiði Norðurá að gefa fleiri tveggja ára laxa Veiði Mikið af vænum fiski veiðist í Elliðavatni Veiði Haustfagnaður SVFR haldinn 19. október Veiði Besti tíminn framundan í Stóru Laxá Veiði Góð veiði í vötnum fyrir norðan um helgina Veiði 22 útskrifaðir úr námi í veiðileiðsögn Veiði 400 Urriðar á land í Laxá í köldu veðri Veiði Sumarið gert upp í Víðidalsá Veiði 94 sm hængur úr Laxá í Kjós Veiði