Tónlist

Bítla-Gandálfur er fallinn

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Það var meðal annars George Martin sem benti Bítlunum á það að skipta Pete Best trommara út fyrir Ringo Starr.
Það var meðal annars George Martin sem benti Bítlunum á það að skipta Pete Best trommara út fyrir Ringo Starr.
Í ævintýrunum eiga söguhetjurnar yfirleitt eitt sérlega göfugt og kærleiksríkt gamalmenni að. Einhvern sem pússar barnaskapinn og ofsann hjá hetjunni og undirbýr hana fyrir þær ótrúlegu raunir sem bíða; hvort sem það er að ferðast í hjarta Mordor til þess að losa heiminn við ógnarafl Hringsins eina eða hvernig sé best að sveifla geislasverði gegn bitrum vélvæddum föður sínum. Í ævintýrinu um Bítlana var George Martin Gandálfur eða Yoda.

Martin tók við ærslafullum Liverpool drengjum sem höfðu þá eytt góðum tíma í að skemmta sveittari hluta Hamborgar í Þýskalandi og slípaði tónlist þeirra að eyrum almennings. Nú er hann allur en hann náði 90 ára aldri.

Það var Ringo Starr, trommuleikari Bítlanna, sem tilkynnti um andlát hans á Twitter í gær.

Fimmti Bítillinn

Martin hóf að starfa með Bítlunum sem upptökustjóri árið 1962 og hélt þeirri stöðu til ársins 1969. Hann var ekki með á síðustu plötu Bítlanna, Let it be, en þar stjórnaði Phil Spector upptökum. Martin starfaði einnig með öðrum sveitum en er best þekktur fyrir það mark sem hann setti á tónlist Bítlanna.

Traust sveitarinnar til hans var slíkt að hann sá oft um að útsetja aukahljóðfæri (eins og hann gerði í Yesterday, Penny Lane og Eleanore Rigby), klippa saman lagabúta (Strawberry Fields var upphaflega tvö lög sem Martin splæsti saman) og leiðbeina liðsmönnum um hvenær best væri að spila á hljóðfæri sín og hvenær ekki.

George Martin var þekktur fyrir yfirvegaða skapgerð sína og lúmskan húmor.Visir/EPA
Í hljóðverinu hafði Martin jafnmikið vægi og Paul, John, George og Ringo um lokaútkomuna. Þar af leiðandi hefur hann oft verið kallaður „fimmti Bítillinn“.

Samstarf George Martin og Paul McCartney hélt áfram eftir að Bítlarnir hættu en hann útsetti meðal annars James Bond lagið „Live and let die“ sem Wings flutti. Af einhverjum ástæðum var hann ekki með árið 1995 þegar Paul, George og Ringo hljóðrituðu lögin Free as a bird og Real Love.

Martin átti samt eftir að vinna meira með tónlist Bítlanna því árið 2006 bjó hann til „nýja“ Bítlaplötu ásamt syni sínum Giles. Sú plata heitir „Love“ en þar taka þeir feðgar gömlu upptökurnar, skella þeim í nýtt deig og baka nýtt brauð úr gömlu hráefni. Þetta var gert fyrir sýningu sem sett var upp í Las Vegas með listahópnum Cirque du Soleil.

Af öðrum listamönnum sem Martin vann með á ferli sínum má nefna Gerry & the Pacemakers, Jeff Beck, Neil Sedaka, Ultravox, Kenny Rogers, Elton John og Celine Dion.

Hér fyrir neðan má sjá heimildarmynd um Martin sem gerð var árið 1998 þar sem fylgst er með gerð plötunnar In My Life þar sem frægir leikarar og söngvarar syngja Bítlalögin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×