Tvær ömmur reynsluaka Lamborghini Murcielago Finnur Thorlacius skrifar 4. mars 2016 09:24
Margir vildu hafa verið í sporum þessar rosknu kvenna sem fengu um daginn tækifæri á að reynsluaka Lamborghini Murcielago og víst er að þær skemmtu sér vel, eins og hér sést. Þær vöktu eðlilega mikla athygli er þær fóru um ónefndan heimabæ sinn í Bandaríkjunum. Þær áttu í fyrstu í vanda með að finna bakkgírinn á bílnum en sú sem ók náði þó góðum tökum á bílnum enda er svo sem ekkert óvenjulegra að aka svona bíl en hverjum öðrum, það eru bara örlítið fleiri hestöfl undir húddinu á honum en þeim flestum, eða 650 stykki. Að sjálfsögðu stóðust þær ekki freistinguna og voru með gluggana niðri og veifuðu forvitnum vegfarendum sem flestir stóðu agndofa að sjá svona eldri konur á slíkum kagga. Eini ókosturinn við meðfylgjandi myndskeið er hve stutt það er og að konurnar gefa bílnum ekki nóg inn og spæla engan á götunum með öllu aflinu.
Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Skilur áhyggjur af afslætti en mun nýta heimildina eins og hægt er Innlent