Juventus komst í bikarúrslitaleikinn eftir sigur í vítakeppni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. mars 2016 23:00 Leonardo Bonucci fagnar sigri í vítakeppninni. Vísir/Getty
Juventus og AC Milan mætast í bikarúrslitaleiknum á Ítalíu í ár en þetta varð ljóst eftir að Juventus sló Internazionale út úr undanúrslitunum eftir maraþonleik á San Siro í kvöld. Juventus var í frábærri stöðu eftir 3-0 heimasigur í fyrri leiknum en tapaði 3-0 í kvöld og því varð að framlengja leikinn. Ekkert var skorað í framlengingunni og úrslitin réðust ekki fyrr en í vítakeppni. Juventus-liðið vann vítakeppnina 5-3 og tryggði sér með því sæti í úrslitaleiknum. Juventus skoraði úr öllum sínum vítaspyrnum og það var Leonardo Bonucci sem skoraði úr lokaspyrnunni. Rodrigo Palacio var sá eini sem klikkaði hjá Internazionale en það var nóg til þess að tapa vítaspyrnukeppninni. Marcelo Brozovic (2 mörk) og Ivan Perisic skoruðu mörk Internazionale í leiknum en Marcelo Brozovic skoraði þriðja markið úr vítaspyrnu átta mínútum fyrir leikslok. AC Milan sló C-deildarlið Alessandria örugglega út í gær í hinum undanúrslitaleiknum en Juve og AC mætast í úrslitaleiknum í Róm 21. maí næstkomandi. Juventus á möguleika á því að verja titilinn en liðið vann ítalska bikarinn í tíunda sinn í fyrra eftir sigur á Lazio í úrslitaleik.
Ítalski boltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Í beinni: Real Madrid - Espanyol | Þurfa að halda í við sjóðheita Börsunga Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Gróðursetja tvö hundruð tré fyrir hvert skorað mark Ferguson saknar fótboltans Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Sjá meira