Tónlist

Aðdáendur undirbúa 30 ára afmælisveislu

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Velgengni Sykurmolanna var fyrsti stóri íslenski tónlistarsigurinn erlendis.
Velgengni Sykurmolanna var fyrsti stóri íslenski tónlistarsigurinn erlendis. vísir/Timothy White
Þótt ótrúlegt megi virðast verða í júní liðin 30 ár frá því að breiðskífa Sykurmolanna, „Life's too good“, kom út. Fáar íslenskar plötuútgáfur hafa haft jafnmikil áhrif á íslenska tónlistarsögu og sú plata en Sykurmolarnir urðu fyrsta íslenska sveitin til þess að ná heimsfrægð og ruddu þannig brautina fyrir sólóferil Bjarkar Guðmundsdóttur.

Öll vitum við hvernig það ævintýri fór og sumir hafa gengið það langt að merkja atburðinn í sögubækur sem mikilvægan fyrir sögu íslenska ferðamannaiðnaðarins. Útgáfan markaði fyrsta raunverulega sigurinn í útrás íslenskrar tónlistar og vakti áður óþekkta athygli á íslenskri tónlistarmenningu fyrir utan landsteinanna.

Aðdáendur sveitarinnar hérlendis eru þegar byrjaðir að undirbúa afmælisveisluna. Einn þeirra er Wim Van Hooste sem er hollenskur tónlistarunnandi sem býr hér og heldur uppi heimasíðunni Rokmusik.co. Sú síða er skrifuð á ensku og fjallar einvörðungu um íslenska tónlist.

Wim hvetur nú aðdáendur sveitarinnar og íslenskar hljómsveitir til þess að hljóðrita nýjar útgáfur af lögum Sykurmolanna sem hann mun þá pósta á síðu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×