Borgward fyrirtækið er nú fjármagnað með kínversku fé og framleiðslan fer einnig fram þar í landi, sem og sala hans í fyrstu. Það gæti þó breyst því Borgward hugleiðir nú einnig framleiðslu og sölu í Þýskalandi. Framleiðslugetan í Kína er 160.000 bílar á ári en gæti hratt risið í 360.000 bíla á ári.
Borgward hefur nú þegar komið sér upp 100 söluaðilum sem verða líklega um 120 í enda þessa árs og 200 í enda næsta árs. Borgward mun taka ákvörðun við enda þessa árs hvort framleiðsla muni hefjast í Þýskalandi og fer nú fram fýsileikakönnun á því.
Næsti bíll Borgward mun verða BX5, öllu minni jepplingur, en síðan er stefnan að framleiða tengiltvinnbíl og rafmagnsbíl fyrir Þýskumælandi markað Evrópu. Rafmagnsbíllinn á að hafa drægni uppá 250 kílómetra og verða á mjög hagstæðu verði.
Höfuðstöðvar Borgward eru í Stuttgart en fjárhagslegt bakland þess er hjá Beiqi Foton Motor í Kína, sem framleiðir bíla í stórum stíl þarlendis. Stefna Borgward er að ná framleiðslu 500.000 bíla á ári á innan fárra ára og að setja fyrirtækið á hlutabréfamarkaðinn í Frankfürt.
